Lífið

Opnar sig um sjálfsvígstilraun: „Þetta er villa í hugarkerfinu!“

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Spákonan Sigga kling opnaði sig óvænt um sjálfsvígstilraun í kjölfar ástarsorgar í þættinum Veislan á FM957. 
Spákonan Sigga kling opnaði sig óvænt um sjálfsvígstilraun í kjölfar ástarsorgar í þættinum Veislan á FM957.  Aðsent/Silla Páls

Það má segja að spákonan Sigga Kling hafi gert Gústa B kjaftstopp þegar hún svaraði spurninum í viðtalsliðnum Hitasætið í þættinum Veislan á FM957. 

Í Hitasætinu, sem er yfirleitt viðtalsliður á léttu nótunum, svara gestir óvæntum persónulegum spurningum en fyrsta spurningin til Siggu var hvort að hún hafi einhvern tíma lent í ástarsorg. 

Átján ára í alvarlegri ástarsorg

Eins og einlægt og heiðarlegt svar Siggu sýndi svo réttilega getur ástarsorg haft alvarlegar afleiðingar á líðan fólks, eins og hún sjálf upplifði á eigin skinni ung að aldri.

„Já, þá var ég átján ára og ég reyndi þá að drepa mig.“

Svarið kom eðlilega mikið á Gústa og Sigga hélt áfram að útskýra.

Þegar maður er ungur þá heldur maður að þessi ást, þessi fyrsta ást sé allt. Ég varð svo sorgmædd að ég var búin að safna saman pillum og át þær allar.

Vill deila reynslunni til að reyna að hjálpa öðrum í sömu stöðu

Sigga segist í örvæntingu sinni hafa verið búin að skrifa skilaboð til allra sem henni stóðu næst en hún hafi ekki viljað skilja neinn útundan. 

„Svo skreið ég einhvern veginn út úr húsinu og fannst svo á einhverjum stigagangi og var sett inn á bráðamóttöku.“

Sigga segir að það megi ekki vanmeta þessar sterku tilfinningar sem fólk geti fundið fyrir í ástarsorg og þá sérstaklega þegar um fyrstu ástina er að ræða. Þetta sé að mörgu leyti „rugl hugsun“ og einhvers konar áráttuþráhyggja.

Það verður allt betra! En þetta var hryllingur og ég man ekki eftir verri tilfinningum, samt hef ég nú lent í mörgu. 

Sigga segir ástæðuna fyrir því að hún deili reynslu sinni vera að það séu svo alltof margir sem geri sér eitthvað í ástarsorg. Að í þessari miklu vanlíðan geti fólk oft ekki gert sér grein fyrir því að hugsunin og upplifunin sé í raun röng. 

„Fólk þarf að muna að þetta er villa! Þetta er villa í hugarkerfinu!“

Vert er að taka fram að í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.

Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á þáttinn í heild sinni. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.