Viðskipti innlent

Atvinnulausum fækkað um þúsund milli mánaða

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Byggingaframkvæmdir í Smáranum
Byggingaframkvæmdir í Smáranum Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Skráð atvinnuleysi var 3,3 prósent í júní og minnkaði úr 0,6 prósent frá því í maí. Að meðaltali fækkaði atvinnulausum því um 1.042 frá maímánuði.

Þetta kemur fram í skýrslu Vinnumálastofnunar. Samkvæmt henni voru 6.675 atvinnulausir í júní, 3.661 karl og 3.014 konur. Alls staðar dró úr atvinnuleysi í júní en hlutfallslega mest á Austurlandi, Norðurlandi eystra og Vestfjörðum. 

Mest var atvinnuleysi á Suðurnesjum í eða 5,8 prósent og minnkaði úr 6,6 prósent í maí. Næst mest var atvinnuleysið 3,7 prósent á höfuðborgarsvæðinu og minnkaði úr 4,2 prósent í maí.

Minnst var atvinnuleysi í júní á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum  eða um 0,9 til 1,5 prósent. Alls höfðu 2.395 verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok júní og fækkaði um 318 frá maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×