Frískaðu upp á IKEA innréttingarnar með nýjum framhliðum Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 19. júlí 2022 10:15 Fyrirtækjum sem sérhæfa sig í því að framleiða framhliðar og aukahluti fyrir IKEA hefur fjölgað mikið síðustu ár. Pinterest Vissir þú að það eru fyrirtæki sem sérhæfa sig í að framleiða úrval af framhliðum og aukahlutum fyrir IKEA innréttingar og húsgögn?
Auðvelt að gera gömlu innréttinguna eins og nýja Grunninnréttingar frá IKEA eru mjög vinsælar bæði fyrir eldhús, fataskápa og hillur en þær þykja hagkvæmar, einfaldar og á góðu verði. Úrvalið í IKEA á framhliðum og aukahlutum, eins og höldum og fótum, er þó eðlilega takmarkað og hentar kannski ekki smekk allra. Hvort sem að fólk er að kaupa nýja IKEA innréttingar eða lappa upp á eldri eru ekki allir sem vita að hægt er að nálgast úrval af framhliðum og aukahlutum í öðrum sérhæfðum verslunum. Mikið úrval af lausnum fyrir vinsælustu IKEA vörurnar Hönnunarfyrirtækjum og verslunum sem sérhæfa sig í því að bjóða upp á framhliðar og ýmiskonar aukahluti fyrir IKEA vörur hefur fjölgað til muna síðustu ár og ættu því flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér fyrir neðan eru dæmi um nokkrar verslanir sem sérhæfa sig í hönnun og sölu á framhliðum og aukahlutum fyrir vinsælustu IKEA vörurnar eins og METOD og FAKTUM eldhússkápa, PAX fataskápa, MALM kommóður, BESTA skápa og SEKTION skápa. 1. Superfront Pinterest/Superfront Sænska fyrirtækið Superfront er líklega með eitt mesta úrvalið þegar kemur að vörum sérhæfðum fyrir IKEA innréttingar og húsgögn en fyrirtækið býður upp á framhliðar bæði fyrir METOD og FAKTUM grunnskápana en FAKTUM eru til dæmis ekki lengur í sölu hér á landi. Einnig er hægt að fá framhliðar á PAX fataskápana og BESTA skápana ásamt úrvali af skápahöldum og fótum undir kommóður og skápa. Heimasíða Superfront. 2. HAF Studio HAF Studio Hið íslenska hönnunarfyrirtæki HAF Studio, sem hjónin Hafsteinn Júlíusson og Karítas Sveinsdóttir standa á bak við, selja glæsilegar framhliðar á IKEA eldhússkápa. Allar framhliðarnar passa á METOD, GODMORGON og PAX en framhliðarnar eru úr gegnheilum eikarramma og spónlagðri eik. Hægt er að velja um tvær gerðir framhliða, RAMMA og GRIP en einnig er hægt að fá hillur og hliðar í stíl. Allar pantanir eru sérframleiddar og því hægt að velja hvaða lit sem er. Heimasíða Haf Studio. 3. Reform Pinterst/Reform Danska fyrirtækið Reform hannar eldhúsinnréttingar í samstarfi við virta hönnuði og arkitekta um heim allan. Fyrirtækið selur ekki bara framhliðar á IKEA skápa heldur er einnig hægt að láta teikna og kaupa heildarlaus á eldhúsinnréttingu hjá þeim. Grunnskápa, skúffur, innvols, borðplötur og allt sem til þarf. Heimasíða REFORM 4. HUSK Pinerest/Husk Breska hönnunarfyrirtækið HUSK einsetur sér að bjóða upp á vandaðar framhliðar á góðu verði og býður upp á mikið úrval framhliða fyrir IKEA eldhús ásamt borðplötum, höldum, vöskum og blöndunartækjum. Heimasíða HUSK 5. Custom Fronts Pinterest/CustomFronts Custom Fronts er breskt fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæða framhliðum í IKEA eldhús. Framhliðarnar eru veglegar og fáanlegar í viði og einnig bambus sem kemur skemmtileg út. Einnig er hægt að panta framhliðarnar öllum regnbogans litum með mismunandi áferð. Heimasíða Custom Fronts. 6. PLYKEA Pinterest PLYKEA Fyrirtækið PLYKEA sérhæfir sig í framhliðum á IKEA eldhúsinnréttingum úr krossvið. Hægt er að velja um skemmtilegar útfærslur á höldum sem mótaðar eru inn í viðinn. Framhliðarnar fást í mörgum gerðum og litum en einnig er boðið upp á úrval af borðplötum. Heimasíða PLYKEA. 7. Holte Pinterest/Holte Breska fyrirtækið Holte hefur getið sér gott orð innan hönnunarheimsins fyrir glæsilega, djarfa og frumlega hönnun en ásamt því að bjóða upp á mikið úrval framhliða fyrir IKEA eldhús er einnig hægt að fá hannaða af þeim ef óskað er eftir. Holte er einnig með skemmilegt úrval af borðplötum úr steini, stáli, granít og terrazzo. Heimasíða Holte. 8. Norse interiours Pinterest/Norse Interiours Bandaríska fyrirtækið Norse Interiours sérhæfir sig í hönnun á framhliðum fyrir þrjár af einum vinsælustu vörum IKEA. BESTA skápa, MALM kommóður og SEKTION skápa. Hönnunin er lífleg, litrík og frumleg en einnig er þar ágætis úrval af höldum og fótum. Heimasíða Norse Interiour.
Tíska og hönnun IKEA Mest lesið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Logi Bergmann var tekinn Lífið Fleiri fréttir Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Ljúffengur sumarréttur með burrata osti Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Falska söngkonan á leið í meðferð Myndaveisla: Héldu upp á tíu ára afmælið í Guðmundarlundi Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Tónleikaferðalagið í vaskinn eftir ummæli um Trump Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Fékk hjálp úr óvæntri átt í miðjum skilnaði Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lengi lifir í gömlum glæðum Rúrik og Pétur Jóhann þeir frægustu sem hún hefur hitt Hrikalega spennandi grillkeppni á Kótilettunni Logi Bergmann var tekinn New York Times lofar Snertingu Með lykilinn að því hvernig á að gera eftirhermu af Íslending Stjörnum prýdd dómnefnd í Ungfrú Ísland Sumarlegur fiskréttur á pönnu Stjörnulífið: Heimir Hallgríms ástfanginn í Suður Frakklandi „Hann er fullkominn eins og hann er“ „Ég var dómharður og ömurlegur gæi“ „Ég var með beinflísar stingandi inn í mænuna mína“ Richard Simmons látinn Shannen Doherty látin Dægrastytting í heimsfaraldri uppskar óvænta frægð Veiðiþættirnir Allt í keng: Nýi skólinn hittir gamla skólann „Þetta er rosaleg sýning“ Sjá meira