Lífið

Love Island stjarna skrifar undir hjá SWIPE

Elísabet Hanna skrifar
Georgia Harrison hefur skrifað undir hjá SWIPE Media sem er í eigu Nökkva, Gunnars og Alexöndru.
Georgia Harrison hefur skrifað undir hjá SWIPE Media sem er í eigu Nökkva, Gunnars og Alexöndru. Aðsend/Skjáskot

Love Island stjarnan Georgia Harrison sem tók þátt í þriðju seríu af raunveruleikaþáttunum sívinsælu hefur skrifað undir hjá umboðsskrifstofunni SWIPE Media. 

Georgia Harrison er áhrifavaldur frá Essex í Bretlandi og er meðal annars þekkt fyrir að hafa komið fram í raunveruleikaþáttum Love Island árið 2017. Hún hefur einnig komið fram í öðrum raunveruleikaþáttum í Bretlandi eins og Celebrity Ex On The Beach og The Only Way Is Essex. Georgia er með 1,1 milljón fylgjendur á Instagram og yfir 400.000 fylgjendur á TikTok og er því með stærstu áhrifavöldunum sem hafa skrifað undir hjá umboðsskrifstofunni.

Hvernig komumst þið í samband við Georgiu?

Við kynnumst Georgiu í gegnum Víking Heiðar vin okkar, sem er einhver best tengdi gæi sem ég hef kynnst. Georgia hefur undanfarið ekki verið með umboðsskrifstofu og henni leist vel á pælingarnar okkar og ákvað því að skrifa undir. 

Við erum ótrúlega þakklát fyrir að fá tækifæri til þess að vinna með henni.

Voruð þið búin að fylgjast með henni í Love Island?

Við kynnumst Georgiu nokkrum árum eftir að hún hafði komið fram í Love Island. Undanfarið hefur hún verið að skipta um fókus hjá sér og við vorum mjög hrifin af því sem hana langar til þess að gera á sínum miðli. 

Við erum spennt að aðstoða hana við að taka næstu skref hjá sér.

Hvernig fóru samningaviðræður fram?

Samningaviðræður gengu bara mjög vel. Við vorum sammála um hvert okkur langaði að fara saman og þá var eftirleikurinn auðveldur.

Hvað er framundan?

Framundan hjá okkur er að móta stefnuna með Georgiu og hjálpa henni við að láta drauma sína rætast. Hún er með stóran vettvang og vill nota miðilinn sinn á góðan hátt og við munum aðstoða hana við það. Georgia er í Los Angeles í augnablikinu, en við munum hitta hana í London í lok ágúst.


Tengdar fréttir

„Verður gaman að taka loksins í spaðann á okkar manni“

SWIPE Media gerði á dögunum umboðssamning við sinn stærsta kúnna til þessa, áhrifavaldinn Dami sem nýtir samfélagsmiðla sína í að taka upp jákvæð og falleg skilaboð sem aðrir geta sent sín á milli ásamt því að vera með sitt eigið vörumerki.

Nýr örlagavaldur á Ástareyjunni

Raunveruleikaþættirnir Love Island hafa notið gríðarlegra vinsælda um allan heim. Þar leita þátttakendur í sífellu að ástinni og hafa hingað til fengið að ákveða sjálfir með hverjum þeir stinga saman nefjum, en nú verður breyting á. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.