Verslunarmanna Helgi Elísabet Hanna skrifar 28. júlí 2022 13:30 Helgi er tilbúinn að taka helgina með trompi. Aðsend Helgi Björnsson ætlar að rifja upp streymistaktana á laugardagskvöldið kemur og verður með landsmönnum í beinni frá Tjörninni á tónleikunum: „Verslunarmanna Helgi“. „
Okkur langar að gera þetta aftur, einfaldlega vegna þess að það er margt fólk sem hefur gaman af því að geta fengið okkur til sín, hvar sem það er statt á landinu eða útí heimi. Allir hafa möguleika á því að skemmta sér með okkur og sínum vinum og vandamönnum“ sagði Helgi í tilkynningu fyrr í mánuðinum. Líkt og áður verða Reiðmenn vindanna með honum í fjörinu sem fór fyrst af stað árið 2020 vegna heimsfaraldursins og gladdi Íslendinga mikið í gegnum þá skrítnu tíma. Hér er hægt að nálgast allar nánari upplýsingar um streymið. Blaðamaður fékk að heyra hljóðið í Helga sem er spenntur fyrir helginni: Extra skemmtun í gegnum sjónvarpið „Mér finnst rosaleg gaman að geta boðið upp á þennan valkost, fólk er orðið vant þessu: Að geta farið í bústað, verið í hjólhýsinu, á tjaldstæðinu eða heima með partý og stuð og geta fengið smá extra skemmtun í gegnum sjónvarpið. Fólk virðist vera búið að læra þetta, kann að meta uppsetninguna og finnst þetta skemmtileg viðbót við aðrar skemmtanir sem eru í boði um helgina,“ segir Helgi um streymið. Þegar kemur að staðsetningu tónleikanna verður Helgi glettinn og segir þá verða á skemmtilegum leynistað við Tjörnina sem á eftir að koma fólki skemmtilega á óvart. „Svo verð ég með frábæra gesti líka. Við ætlum að halda þeim sið að gefa þá ekki upp fyrirfram svo það verður einnig óvænt ánægja þegar þeir stíga á stokk.“ Það verða einnig góðir gestir á svæðinu.Aðsend Endurtaka leikinn „Við gerðum þetta í fyrra og það var rosalega gaman, við erum að halda uppi fjörinu á laugardagskvöld um verslunarmannahelgi og uppsetningin mun litast af því. Mikið stuð, stemning og mikið af partýlögum sem fólk getur dansað og sungið við,“ segir Helgi og er augljóst að markmiðið er einfalt: Að hafa gaman. „Ég sé þetta fyrir mér þannig að þetta sé eins og gott Eurovision partý þar sem þú býður í grill, allir mæta og fá sér vínglas. Svo byrjar stuðið þar sem er hækkað í græjunum og allir dilla sér með og tónleikarnir verða partur af partýinu.“ Mikið líf og fjör framundan um helgina. Framundan er enn meira fjör Eftir tónleikana og allt skipulagið sem þeim fylgir segist Helgi mögulega eiga eftir að verða eins og sprungin blaðra en lætur það þó ekki stoppa sig á stærstu ferðahelgi ársins og ætlar að kíkja á Neskaupstað. Að helginni lokinni er svo ekkert nema stuð framundan: „Það er bara að hafa gaman og leika sér. Ég ætla að vera duglegur að ríða út í ágúst og síðan er næsta bara menningarnótt með Bylgjunni í Hljómskálagarðinum.“
Tónlist Tengdar fréttir Niðurstaðan liggur fyrir og Einar gefur veðrinu um versló falleinkunn Veðurspáin fyrir verslunarmannahelgina hefur verið nokkuð á reiki síðustu daga og kom fram í gær að tvær helstu langtímaveðurspárnar hafi sýnt gjörólíka spá fyrir helgina. Þannig gerði önnur þeirra ráð fyrir því að lægð myndi ganga yfir landið með tilheyrandi áhrifum en hin ekki. 28. júlí 2022 09:00 Hlustaðu á Helga Björns og Hönsu taka lagið úr heitasta söngleiknum á Íslandi Negla SOS með ABBA. 11. mars 2016 15:27 Mest lesið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak Menning Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Menning Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Bíó og sjónvarp Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Bara alvöru áhrifavaldar í afmælispartýi Polynorth Lífið samstarf Fleiri fréttir „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta „Ég held ég sé með niðurgang“ Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Steldu stílnum af heimili Svönu Lovísu Hollt veisluhlaðborð sem er lygilega bragðgott og girnilegt Stjörnulífið: Eddan, rauðar blúndur og afmæli í París VÆB-bræður fyrstir á svið í Eurovision Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Stefán Einar og Sara Lind selja parhúsið Richard Chamberlain er látinn Úr svefnherbergispoppi í drum-n-bass: „Fólkið var ógeðslega mikið að fíla þetta“ „Þarna brotnaði ég bara niður og grét og grét“ Krakkatían: Andrés Önd, Bubbi Morthens og ballett Adolescence: Börn ekki lengur örugg ein inni í herbergi Halda tíu tíma maraþontónleika Löng fangelsisvist blasir við popparanum Áhrifavaldar og þingmenn ræddu kærleikann „Þetta má ekki vera feimnismál“ „Ástarsorg er best í heimi“ Fréttatía vikunnar: Eddan, rektorskjör og mannanafnanefnd Fólk spyrji um veganisma af forvitni frekar en til að vera með leiðindi Fimm tíma morgunrútínan sem allir eru að tala um Eiginkona rafrettukóngs keypti eitt dýrasta einbýlishús Garðabæjar Dóttir Fox og Kelly komin í heiminn „Þetta var ekki alið upp í mér“ Hefur miklar áhyggjur af auknum vopnaburði barna Bitin Bachelor stjarna Svara auknum fordómum og fáfræði með jákvæðni og list Sjá meira
Niðurstaðan liggur fyrir og Einar gefur veðrinu um versló falleinkunn Veðurspáin fyrir verslunarmannahelgina hefur verið nokkuð á reiki síðustu daga og kom fram í gær að tvær helstu langtímaveðurspárnar hafi sýnt gjörólíka spá fyrir helgina. Þannig gerði önnur þeirra ráð fyrir því að lægð myndi ganga yfir landið með tilheyrandi áhrifum en hin ekki. 28. júlí 2022 09:00
Hlustaðu á Helga Björns og Hönsu taka lagið úr heitasta söngleiknum á Íslandi Negla SOS með ABBA. 11. mars 2016 15:27