Lífið

„Alltaf síðan ég fæddist“

Elísabet Hanna skrifar
Guðbjörg hefur aldrei misst af Þjóðhátíð en hér er hún ásamt systur sinni Ingu Birnu Sigursteinsdóttur þar sem þær skála í kaffi í hvíta tjaldinu sínu.
Guðbjörg hefur aldrei misst af Þjóðhátíð en hér er hún ásamt systur sinni Ingu Birnu Sigursteinsdóttur þar sem þær skála í kaffi í hvíta tjaldinu sínu. Elísabet Hanna

Guðbjörg Hrönn Sigursteinsdóttir hefur aldrei misst af Þjóðhátíð á allri sinni lífstíð. Jafnvel þegar hátíðin féll niður tvö ár í röð vegna Covid var helgin haldin hátíðlega á Lóðahátíð sem fangaði andann.

„Já alltaf síðan ég fæddist,“ segir eyjamærin Guðbjörg þar sem blaðamaður hitti á hana í hvíta tjaldi fjölskyldunnar og spurði hvort að hún hafi komið oft í dalinn. Aðspurð hvernig hún hafi náð að halda hana hátíðlega þegar samkomutakmarkanir voru í gangi stendur ekki á svörum: „Þá vorum við bara á Lóðahátíð og sungum þar í tjaldi, í bæði skiptin.“ Hún segir það mjög gott að vera komin aftur.

Marý Kolbeinsdóttir, Leifur Gunnarsson, Guðbjörg Hrönn Sigursteinsdóttir og Emilíana Erla Ágústsdóttir.Elísabet Hanna

Mátti ekki missa af þessari

Leifur Gunnarsson, kallaður Leifur í Gerði var einnig staddur í hvíta tjaldinu. Hann segist hafa misst af nokkrum hátíðum í fortíðinni en í ár hafi það ekki komið til greina. „Það mátti ekki missa af þessari, það var kominn tími til að koma aftur á Þjóðhátíð eftir tveggja ára bið.“

„Frumflutningur á Þjóðhátíðarlaginu verður æði með kvennakór Vestmannaeyja og þessari dásamlegu stúlku sem samdi þetta lag,“ segir hann og vitnar þar í Klöru Elias sem samdi og flytur lagið í ár. 


Tengdar fréttir

Spennt fyrir íslensku tónlistinni

Eva Doyle kom til Íslands í maí frá Írlandi þess að sinna sjálfboðastörfum en endaði á Þjóðhátíð þar sem hún er spennt að kynnast íslenskri tónlist betur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.