Dóri DNA, Björn Bragi, Logi Pedro, Jón Pétur, Jóhann Kristófer og Arnar Ingi.Árni Beinteinn
Vera mathöll opnaði í Vatnsmýri um helgina en um er að ræða mathöll þar sem átta veitingastaðir verða með rekstur sinn.
Opnunin gekk eins og í sögu
„Helgin gekk bara eins og í sögu. Það var frábær mæting og mikil stemning. Við erum bara alveg í skýjunum með þetta,“ segir Björn Bragi Arnarsson, eigandi og framkvæmdastjóri VERU.
Af þeim átta stöðum sem verða í höllinni eru þrír þeirra með fyrri staðsetningar en það eru: Pünk Fried Chicken sem hefur starfað í Gróðurhúsinu í Hveragerði, pizzastaðurinn Natalía úr Borg29 og vínbarinn og kaffihúsið Mikki Refur af Hverfisgötu.
Kjúklingastaðurinn Pünk Fried Chicken opnar sinn annan stað í Veru en hann er einnig í Gróðurhúsinu í Hveragerði.Árni Beinteinn
Fimm nýir staðir
Hinir fimm staðirnir eru nýir en þar er um að ræða mexíkóska staðinn Caliente, Bang Bang sem sérhæfir sig í asískum mat, súpustaðinn Næru, morgunverðarstaðinn Stund og Furu sem er nýr staður í eigu verðlaunakokksins Denis Grbic.
„Við erum einstaklega ánægð með þessa sametningu af stöðum. Það er fjölbreyttur og góður matur í boði og svo er andinn í húsinu hrikalega góður,“ segir Björn Bragi.
Aron Mola og Aron Can eru meðal eiganda Stund.Árni Beinteinn
Hönnun frá HAF Studio
Hönnun staðarins var í höndum Hafsteins Júlíussonar og hönnunarstofu hans, HAF Studio. „Þeim hefur tekist að skapa ótrúlega flotta heildarmynd, þannig að maður upplifir að maður sé að koma inn á einn stóran veitingastað, en á sama tíma ná þessir átta ólíku staðir að njóta sín hver fyrir sig,“ segir Björn.
Björn Bragi og Hafsteinn Júlíusson sem hannaði meðal annars staðinn.Árni Beinteinn
Ljósmyndarinn Árni Beinteinn mætti á opnunarkvöldið og fangaði stemninguna þar sem margt var um manninn en myndir frá opnuninni má sjá hér að neðan:
Félagarnir nutu vel.Árni BeinteinnDóri DNA, Björn Bragi, Aron Mola og Aron Can.Árni BeinteinnÁrni BeinteinnPlötusnúðurinn Arnar Ingi, jafnan þekktur sem Young Nazareth.Árni BeinteinnHjónin Halla Jónsdóttir og Hannes Halldórsson óskuðu Aroni Mola til hamingju með nýja staðinn. Árni BeinteinnAllir voru saddir og sælir á opnuninni. Árni BeinteinnLeifur Þorsteinsson, Eiríkur Ari Sigríðarson og Bergsveinn Ólafsson.Árni BeinteinnÁrni BeinteinnBjörn Bragi, Hafsteinn og Sigurður Straumfjörð Pálsson.Árni BeinteinnFuru er nýr staður í eigu verðlaunakokksins Denis Grbic.Árni BeinteinnOpnunin fór fram úr björtustu vonum.Árni BeinteinnFríða Halldórsdóttir, Helena Sævarsdóttir og Katrín Júníana.Árni BeinteinnAron x2.Árni BeinteinnGuðrún Heiða og Guðmundur Oddur.Árni BeinteinnÁrni BeinteinnSkál!Árni BeinteinnJóhann Kristófer, Jón Pétur og Logi Pedro.Árni BeinteinnKormákur Marðarson,Árni BeinteinnKarítas Sveinsdóttir, einn hönnuða Veru, og dóttir hennar Úlfhildur.Árni BeinteinnSvava H. Johannessen og Benedikt Benediktsson.Árni BeinteinnAron Mola og Ari Steinn Skarphéðinsson.Árni BeinteinnDóri DNA alsæll á Mikka ref.Árni Beinteinn
Hjólreiðakeppnin Westfjords Way Challenge fór fram í vikunni í fyrsta sinn en keppendur hjóluðu allan Vestfjarðarhringinn á einungis fimm dögum. 57 keppendur tóku þátt og komu þeir frá öllum heimshornum.
Um helgina fór fram íslandsmeistaramótið í flonkyball á vegum Fm957 og Flonkyball sambands Íslands. Mótið fór fram í Bæjarbíó í Hafnarfirði og klæddu keppendur sig upp í búninga og lögðu allt undir á vellinum.
Ávaxtakarfan var frumsýnd um helgina í Hörpu þar sem sýningarnar munu fara fram. Einvalalið leikara fer með hlutverk ávaxtanna og grænmetisins og var líkt og Eyþór Ingi hafi aldrei gert annað en að leika sjálfumglaðan ananas.