Lífið

VERA mathöll hefur opnað dyrnar

Elísabet Hanna skrifar
Dóri DNA, Björn Bragi, Logi Pedro, Jón Pétur, Jóhann Kristófer og Arnar Ingi.
Dóri DNA, Björn Bragi, Logi Pedro, Jón Pétur, Jóhann Kristófer og Arnar Ingi. Árni Beinteinn

Vera mathöll opnaði í Vatnsmýri um helgina en um er að ræða mathöll þar sem átta veitingastaðir verða með rekstur sinn. 

Opnunin gekk eins og í sögu

„Helgin gekk bara eins og í sögu. Það var frábær mæting og mikil stemning. Við erum bara alveg í skýjunum með þetta,“ segir Björn Bragi Arnarsson, eigandi og framkvæmdastjóri VERU.

Af þeim átta stöðum sem verða í höllinni eru þrír þeirra með fyrri staðsetningar en það eru: Pünk Fried Chicken sem hefur starfað í Gróðurhúsinu í Hveragerði, pizzastaðurinn Natalía úr Borg29 og vínbarinn og kaffihúsið Mikki Refur af Hverfisgötu. 

Kjúklingastaðurinn Pünk Fried Chicken opnar sinn annan stað í Veru en hann er einnig í Gróðurhúsinu í Hveragerði.Árni Beinteinn

Fimm nýir staðir

Hinir fimm staðirnir eru nýir en þar er um að ræða mexíkóska staðinn Caliente, Bang Bang sem sérhæfir sig í asískum mat, súpustaðinn Næru, morgunverðarstaðinn Stund og Furu sem er nýr staður í eigu verðlaunakokksins Denis Grbic.

„Við erum einstaklega ánægð með þessa sametningu af stöðum. Það er fjölbreyttur og góður matur í boði og svo er andinn í húsinu hrikalega góður,“ segir Björn Bragi.

Aron Mola og Aron Can eru meðal eiganda Stund.Árni Beinteinn

Hönnun frá HAF Studio

Hönnun staðarins var í höndum Hafsteins Júlíussonar og hönnunarstofu hans, HAF Studio. „Þeim hefur tekist að skapa ótrúlega flotta heildarmynd, þannig að maður upplifir að maður sé að koma inn á einn stóran veitingastað, en á sama tíma ná þessir átta ólíku staðir að njóta sín hver fyrir sig,“ segir Björn.

Björn Bragi og Hafsteinn Júlíusson sem hannaði meðal annars staðinn.Árni Beinteinn

Ljósmyndarinn Árni Beinteinn mætti á opnunarkvöldið og fangaði stemninguna þar sem margt var um manninn en myndir frá opnuninni má sjá hér að neðan:

Félagarnir nutu vel.Árni Beinteinn
Dóri DNA, Björn Bragi, Aron Mola og Aron Can.Árni Beinteinn
Árni Beinteinn
Plötusnúðurinn Arnar Ingi, jafnan þekktur sem Young Nazareth.Árni Beinteinn
Hjónin Halla Jónsdóttir og Hannes Halldórsson óskuðu Aroni Mola til hamingju með nýja staðinn. Árni Beinteinn
Allir voru saddir og sælir á opnuninni. Árni Beinteinn
Leifur Þorsteinsson, Eiríkur Ari Sigríðarson og Bergsveinn Ólafsson.Árni Beinteinn
Árni Beinteinn
Björn Bragi, Hafsteinn og Sigurður Straumfjörð Pálsson.Árni Beinteinn
Furu er nýr staður í eigu verðlaunakokksins Denis Grbic.Árni Beinteinn
Opnunin fór fram úr björtustu vonum.Árni Beinteinn
Fríða Halldórsdóttir, Helena Sævarsdóttir og Katrín Júníana.Árni Beinteinn
Aron x2.Árni Beinteinn
Guðrún Heiða og Guðmundur Oddur.Árni Beinteinn
Árni Beinteinn
Skál!Árni Beinteinn
Jóhann Kristófer, Jón Pétur og Logi Pedro.Árni Beinteinn
Kormákur Marðarson,Árni Beinteinn
Karítas Sveinsdóttir, einn hönnuða Veru, og dóttir hennar Úlfhildur.Árni Beinteinn
Svava H. Johannessen og Benedikt Benediktsson.Árni Beinteinn
Aron Mola og Ari Steinn Skarphéðinsson.Árni Beinteinn
Dóri DNA alsæll á Mikka ref.Árni Beinteinn

Tengdar fréttir

Myndaveisla: Hjóluðu alla Vestfirði á fimm dögum

Hjólreiðakeppnin Westfjords Way Challenge fór fram í vikunni í fyrsta sinn en keppendur hjóluðu allan Vestfjarðarhringinn á einungis fimm dögum. 57 keppendur tóku þátt og komu þeir frá öllum heimshornum. 

Mynda­veisla: Ís­lands­meistara­mótið í flon­kyball

Um helgina fór fram íslandsmeistaramótið í flonkyball á vegum Fm957 og Flonkyball sambands Íslands. Mótið fór fram í Bæjarbíó í Hafnarfirði og klæddu keppendur sig upp í búninga og lögðu allt undir á vellinum. 

Safarík myndaveisla frá frumsýningu Ávaxtakörfunnar

Ávaxtakarfan var frumsýnd um helgina í Hörpu þar sem sýningarnar munu fara fram. Einvalalið leikara fer með hlutverk ávaxtanna og grænmetisins og var líkt og Eyþór Ingi hafi aldrei gert annað en að leika sjálfumglaðan ananas.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.