Lífið

Drekkur Monster orkudrykk fyrir Laugavegshlaupið

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Andrea Kolbeinsdóttur hefur slegið nokkur Íslandsmet og unnið hvert hlaupið á eftir öðru.
Andrea Kolbeinsdóttur hefur slegið nokkur Íslandsmet og unnið hvert hlaupið á eftir öðru. Aðsent

Andrea Kolbeinsdóttur hefur verið að slá í gegn í hlaupaheiminum þrátt fyrir ungan aldur. Hún er 23 ára læknisfræðinemi og vann öll hlaup sem hún keppti í síðasta árið. 

g„Það er eitthvað við það að ögra sjálfum sér og fara út fyrir þægindarammann,“ segir Andrea um hlaupaáhugann. Hún var virk í íþróttum sem barn og var byrjuð að hlaupa um tólf ára aldur. Hún segir að hlaupin séu gefandi og er dugleg að setja sér krefjandi markmið. 

„Það er ekkert betra en að koma í mark og ná markmiðunum sínum,“ segir Andrea í viðtali í Ísland í dag.

Alltaf verið náttúrubarn

Hún á nú 16 virk Íslandsmet í greinum frá 3000 metrum innanhúss upp í hálft maraþon á götu. Andrea er búin að setja nokkur brautarmet í sumar eins og upp Esjuna, Snæfellsjökulshlaupið, Dyrfjallahlaupið, Súlur Vertical, Fimmvörðuhálshlaupið og svo auðvitað Laugaveginn.

„Ég er ótrúlega mikið náttúrubarn og hef alltaf haft gaman af útivist,“ segir Andrea um það hvernig áhuginn á utanvegahlaupum kviknaði. 

Laugavegshlaupið er svokölluð árshátíð hlaupara en þar hlaupa flottustu hlauparar landins 55 km þar sem þau byrja í landmannalaugum og enda í þórsmörk. Andrea er eina konan sem hefur náð að hlaupa Laugavegshlaupið undir fimm tímum. Í ár var hún fyrst kvenna í mark á tímanum 04:33:07. Í viðtalinu er hún meðal annars spurð út í það að hún sást drekka Monster orkudrykk áður en hún hljóp af stað.

„Ég drekk ekki mikið af koffín drykkjum og er almennt að hugsa um heilsuna og borða hollt. Í fyrra var ég ósofin fyrir hlaupið og það var í fyrsta skipti sem ég keypti mér orkudrykk.“

Varð betri hlaupari eftir meiðslin

Í viðtalinu opnaði hún sig um áskorun sem hún þurfti að kljást við á ferlinum þegar hún fékk álagsbrot á ristina árið 2018. 

„Ég var ótrúlega lengi að greinast, þetta var bara lítil sprunga.“

Andrea hljóp lengi með fótinn brotinn og þetta urðu því mjög þrálát meiðsli.

„En þetta kenndi mér ógeðslega mikið, eins og að hlusta á líkamann.“

Í þessum meiðslum harkaði hún af sér og notaði verkjalyf og lærði að gera það aldrei aftur.

„Ég er orðin betri hlaupari eftir meiðslin“

Innslagið má sjá í heild í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Andrea og Arnar unnu Lauga­vegs­hlaupið

Arnar Pétursson var fljótastur að hlaupa Laugaveginn í karlaflokki á tímanum 4:04:53 og Andrea Kolbeinsdóttir var hlutskörpust kvenna á nýju brautarmeti, 4:33:07. Í fyrra varð hún fyrst kvenna til að hlaupa kílómetrana 55 á minna en fimm klukkustundum.

Sló met í sínu fyrsta Lauga­vegs­hlaupi

Andrea Kolbeinsdóttir kom í mark fyrst kvenna í Laugavegshlaupinu í dag, á óopinbera tímanum 4:55:55. Með því sló hún brautarmet í kvennaflokki, en gamla metið var 5:00:37.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.