Sport

Dagskráin: Rafíþróttir, golf og stórleikur í ítalska fótboltanum

Atli Arason skrifar
José Mourinho fer með lærisveina sína í Roma í heimsókn til Juventus.
José Mourinho fer með lærisveina sína í Roma í heimsókn til Juventus. EPA-EFE/MASSIMO PICA

Það eru hvorki meira né minna en 12 beinar útsendingar á sport rásum Stöðvar 2 á þessum laugardegi. Úrslitakeppnin á BLAST Premier mótinu í CS:GO heldur áfram, þriðji dagur á Tour Championship í PGA mótaröðinni og stórleikur í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta bera hæst.

Stöð 2 Sport 2

Útsending af stórleik Juventus og Roma í ítölsku úrvalsdeildinni hefst klukkan 16.20.

Í sömu keppni tekur AC Milan á móti Bologna í beinni útsendingu klukkan 18.35.

Stöð 2 Sport 3

Cremonese mætir Torino í ítölsku úrvalsdeildinni klukkan 16.20.

Klukkan 18.35 eigast við Sepzia og Sassuolo, einnig í ítölsku úrvalsdeildinni.

Stöð 2 Sport 4

Skafto Open mótið á LET mótaröðinni er á dagskrá klukkan 09.30.

Klukkan 18.30 hefst Canadian Pacific Women‘s Open á LPGA mótaröðinni.

Stöð 2 Golf

Omega European Masters á DP World Tour fer af stað klukkan 11.00.

Klukkan 17.00 hefst útsending af þriðja degi á Tour Championship á PGA mótaröðinni.

Stöð 2 eSport

Upphitun fyrir 6. dag í útsláttarkeppni BLAST Premier hefst klukkan 10.30.

Viðureign Astralis gegn OG á BLAST Premier byrjar svo klukkan 11.00.

Klukkan 14.30 mætast Vitality og Natus Vincere í BLAST Premier.

Liquid og Heroic eigast svo við klukkan 18.00 í lokaviðureign dagsins á BLAST Premier mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×