Lífið

Stjörnulífið: Skemmtiferðaskip, barneignir og útlönd

Elísabet Hanna skrifar
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir allt það helsta af samfélagsmiðlum.
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir allt það helsta af samfélagsmiðlum. Skjáskot/Instagram

Stjörnulífið þessa vikuna var fullt af stemningu, barneignum og utanlandsferðum. Skemmtiferðaskipið Norwegian Prima og guðmóðir þess Katy Perry stálu senunni um helgina en íslenskar stjörnur skemmtu einnig gestum skipsins. 

Lúxus pían Magnea Björg skellti sér í fyrsta skipti til Danmerkur.

Athafnamaðurinn Beggi Ólafs ræddi mikilvægi þess að vera stoltur karlmaður sem vakti upp margvíslegar tilfinningar meðal fylgjenda hans.

Leik- og söngkonan Þórdís Björk er heppin að hafa Júlí Heiðar með sér á ferðalagi til þess að fanga augnablikið.

Söngkonan Jóhanna Guðrún smellti einum kossi á dóttur sína í sólinni.

Útvarpsmaðurinn Svavar Örn bauð upp á smá nostalgíu á sínum miðli.

Förðunarfræðingurinn Kolbrún Anna Vignisdóttir er snillingur þegar kemur að litavali hvort sem um ræðir í förðun, fatavali eða innan veggja heimilisins. Nýlega skipti hún einnig um hárlit sem er enn önnur neglan hjá henni. 

Leikkonan Júlíana Sara og Aron Can kepptu í Kviss fyrir hönd Fjölnis á móti Aron Mola og Önnu Svövu sem voru í Víkings treyjunum. Það kemur í ljós á skjánum í haust á Stöð 2 hver sigraði.

Þáttastjórnandinn Björn Bragi skellti sér líka í búning utan tökutíma, sem Bjössi Blaze.

Raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir og Benedikt Bjarnason fögnuðu þriggja ára sambandsafmæli.

Bríet og Ásgeir Trausti komu fram saman í Hörpu á tónleikunum hans á laugardaginn þar sem hann hélt upp á tíu ára afmæli plötunnar Dýrð í dauðaþögn.

Frumkvöðullinn Tanja Ýr hélt viðburð fyrir aðra áhrifavalda þar sem hún var að kynna nýja vöru hjá fyrirtækinu sínu.

Listamaðurinn Logi Pedro er þrítugur í dag og er enn á meðal vor. Bróðir hans Unnsteinn Manuel var að fara af stað með hlaðvarpið Amatör samhliða útgáfu á sinni fyrstu sólóplötu.

Hjónin Elísabet Gunnarsdóttir og Gunnar Steinn röltu um götur miðbæjarins.

Fyrrum fótboltamaðurinn Rúrik Gíslason hvetur fylgjendur sína til þess að fara út úr húsi og vera með þeim sem þeir elska.

Ráðherran Áslaug Arna reið um spegilsléttar fjörur ásamt öðrum frábærum konum.

Áhrifavaldurinn Alexandra Bernhard hefur það notalegt í sólinni á Spáni umvafin pálmatrjám.

Förðunarfræðingurinn Erna Hrund átti notalega helgi með fjölskyldunni sinni og náði að skella sér á stefnumót með sínum heitelskaði Jóni Kristófer.

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra fór í kúreka gallann og naut sín á Ísafirði.

Söngvarinn Hreimur náði að kalla fram sannkallaða brekkusöngs stemningu í skíðaskálanum í Hveradölum þar sem hann skemmti starfsmönnum Össurs.

OnlyFans stjörnurnar Ósk Tryggvadóttir og Ingólfur Valur Þrastarson eiga von á barni. Þau byrjuðu saman eftir að hafa tekið upp myndbönd saman.

Tónlistarkonan Elín Ey er þakklát og glöð að vera umvafin börnunum sínum eftir ævintýri ársins. Nýtt lag er væntanlegt frá Systrum undir lok næsta mánaðar. 

Fótboltakonan Bergling Björg var að spila sinn fyrsta leik fyrir PSG.

Áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson er stoltur frændi að fylgjast með Gunnari Erik fara með hlutverk Emils í Kattholti.

Kraftlyftingakonan Arnhildur Anna og Alfreð Már Hjaltalín voru sykursæt í sólinni.

Golfarinn Ólafía Þ. Kristinsdóttir lagði golfkylfuna á hilluna og tilkynnti það í myndbandi. 

Söngkonan Svala Björgvins fór í karókí og stuð hjá Erpi Eyvindarsyni um helgina. 

Tónlistarfólkið Þuríður Blær og Daði Freyr skemmtu um borð í skemmtiferðaskipinu Norwegian Prima.

Tónlistarmennirnir Jói P og Króli komu fram saman en nú styttist óðum í þeirra síðustu framkomu.. í bili.

Leikkonan Elín Sif Hall tekur við hlutverki Rakelar Björnsdóttur í söngleiknum Níu líf sem ungi Bubbi og stígur þar sín fyrstu skref í leikhúsinu.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Ítalskur draumur, sveitabrúðkaup og lúxus

Ástin leyndi sér ekki í stjörnulífinu þar sem brúðkaup voru um víðan völl, meðal annars á Ítalíu og í sveitinni. Svavar Örn og Daníel Örn gengu í það heilaga eftir nítján ára samband og Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik deildu kossi.

Stjörnulífið: Gleðigangan, gosið og grín

Gleðigangan fyllti samfélagsmiðla af ást, gleði og fjölbreytileika um helgina. Gosið sýndi sínar bestu hliðar og virtust margir leggja leið sína að því þrátt fyrir orð Víðis um að æða ekki upp á fjall. Grínið var líka áberandi þar sem Ari Eldjárn fór aftur af stað með uppistandið sitt í Edinborg og einnig fjölgaði í grínistum landsins.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.