Gildi kaus mun oftar en aðrir sjóðir gegn tillögum stjórna
![Iðulega má finna Gildi á meðal fimm stærstu hluthafanna í innlendum félögum sem eru skráð í Kauphöllinni.](https://www.visir.is/i/58C78284535F9659CE248205208D9ABB685999749BDCF2E884B43D91AF70185B_713x0.jpg)
Á síðustu tveimur árum hefur Gildi lífeyrissjóður greitt atkvæði gegn tillögum stjórna mun oftar en aðrir lífeyrissjóðir samkvæmt samantekt Innherja á því hvernig stærstu sjóðir landsins beita sér á aðalfundum skráðra félaga. Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður eignarstýringar Gildis, segir að sjóðnum beri skylda til að sinna hlutverki sínu sem stór hluthafi í innlendum félögum og láta sig málefni þeirra varða.