Lífið

Sóli og Viktoría gengu í hjóna­band

Árni Sæberg skrifar
Viktoría Hermannsdóttir og Sóli Hólm eru nýgift.
Viktoría Hermannsdóttir og Sóli Hólm eru nýgift. Vísir/Vilhelm

Grínistinn Sólmundur Hólm og fjölmiðlakonan Viktoría Hermannsdóttir gengu í hið heilaga í dag. 

Hjónin greindu frá gleðitíðindunum á Instagram rétt í þessu. Þau birtu fallega mynd af sér í sínu fínasta pússi fyrir utan dómkirkjuna í Reykjavík og sögðu einfaldlega „Nýgift!“

Hamingjuóskum hefur ringt yfir hjónakornin á samfélagsmiðlum og Vísir sendir þeim að sjálfsögðu hamingjuóskir.

Hjónin hafa verið saman frá árinu 2016 og árið 2018 fór Sóli á skeljarnar í París.

Saman eiga þau tvö börn og fyrir átti Viktoría dóttur og Sóli tvo drengi. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.