TEN5ION leikur í fyrsta sinn í Ljósleiðaradeildinni eftir að hafa unnið umspil á síðasta tímabili og þurfa Hugo og félagar því að sanna sig í vetur.
SAGA lenti hins vegar í 6. sæti síðast og slapp því naumlega frá falli. Fyrir SAGA fer að sjálfsögðu ADHD og mátti búast við skemmtilegum einvígum milli hans og Vikka.
Í þessum fyrsta leik liðanna lá leiðin í Ancient kortið. Vikki vann hnífalotuna fyrir TEN5ION sem fékk fyrir vikið að byrja í vörn (Counter-terrorists).
ADHD var fremstur með jafningja hjá SAGA í upphafi leiks þar sem SAGA sótti hart og svaraði fellum TEN5ION vel til að komast í 4–1. TEN5ION tókst svo að jafna með 3 sigrum í röð.
Vikki hafði verið lengi í gang á vappanum en undir lok hálfleiks fór hann að hitta vel á miðjunni á meðan Sveittur og Tight röðuðu inn fellunum annars staðar á kortinu.
Staða í hálfleik: SAGA 7 – 8 TEN5ION
Í síðari hálfleik skiptu liðin um hlutverk og var komið að TEN5ION að koma sprengjunni fyrir. Það gekk vel í upphafi hálfleiks þar sem skemmtilegar reyksprengjur frá Tight opnuðu vörn SAGA. TEN5ION komst því í 11–7 áður en SAGA tók við sér.
Tvöföld fella og aftenging frá DOM á síðustu stundu jafnaði leikana á ný 11–11. Eftir það var leikurinn í járnum. TEN5ION var nálægt því að tryggja sér sigur en Hugo gafst ekki tími til að setja sprengjuna niður í 30. lotu og var því jafnt eftir venjulegan leiktíma.
Staða eftir venjulegan leiktíma: SAGA 15 – 15 TEN5ION
Úrslitin réðust að lokum í tvöfaldri framlengingu þar sem ADHD skaut sína menn til sigurs með vappanum.
Lokastaða: SAGA 22 – 19 TEN5ION
SAGA vann því þennan fyrsta leik tímabilsins og var ADHD atkvæðamestur með 38 fellur, en Hugo hjá TEN5ION var ekki langt undan með 35.
Næstu leikir liðanna:
- SAGA –Þór, þriðjudaginn 20/9 kl. 19:30
- TEN5ION –Fylkir, fimmtudaginn 22/9 kl. 21:30
Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.