Innlán fyrirtækja bólgnað út um nærri 50 prósent á rúmlega einu ári
![Frá vormánuðum í fyrra hafa innlán atvinnufyrirtækja vaxið um liðlega 210 milljarða. Mest hefur aukingin verið hjá fyrirtækjum í flutningum og samgöngum.](https://www.visir.is/i/BB38B2397AE8922CD06A10A7F1B7AB16311E55A440A45AC13A366E7BC069E511_713x0.jpg)
Ekkert lát er á miklum vexti í innlánum atvinnufyrirtækja en frá því um vorið 2021 hafa þau aukist að umfangi í bankakerfinu um nærri fimmtíu prósent. Á sama tíma hefur verið afar lítil aukning í innlánum heimilanna sem hafa skroppið saman að raunvirði á síðustu mánuðum og misserum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/3C66A027B86F7D24D9989350DBA90B0632179818CA3735F02B42CC2F47708BED_308x200.jpg)
Seðlabankinn ofmat umfang útlána til fyrirtækja um 150 milljarða
Umfang fyrirtækjalána í fjármálakerfinu jókst um rúmlega 87 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt leiðréttum tölum frá Seðlabanka Íslands. Þrátt fyrir að aukningin sé sú mesta sem sést hefur á milli fjórðunga frá því í árslok 2016 þá er hún aðeins tæplega þriðjungur af því sem fyrri tölur bankans höfðu sýnt.
![](https://www.visir.is/i/7FF195F3675D4AF2013F5BB91273FB6D9C8D5BFCE251C1BD0823513688E480AD_308x200.jpg)
Ætlar að ná niður verðbólgunni svo það verði um „eitthvað að semja“
Skýr teikn eru á lofti um að það sé að myndast ofþensla í þjóðarbúskapnum. Það birtist í blússandi gangi í einkaneyslu, sem jókst um 14 prósent á milli ára á öðrum fjórðungi, skorti á starfsfólki og hækkandi verðbólgu sem gæti nálgast 11 prósent í árslok. Verði samið um launahækkanir í komandi kjarasamningum nálægt núverandi verðbólgu mun Seðlabankinn ekki geta setið aðgerðalaus hjá.