Í stöðunni 13-8, Þórsurum í vil, var Eiki47 einn eftir í liði Fylkis gegn tveimur meðlimum Þórsara, þeim ReaN og miNideGreez!.
Eiki47 þurfti því einn síns liðs að verja bombuna á svæði B í Ancient-kortinu og tók út báða meðlimi Þórs á svipstundu og kláraði lotuna fyrir Fylki.
Þrátt fyrir þessi tilþrif Eika47 voru það þó Þórsarar sem höfðu betur í viðureigninni, 16-14, og er því enn með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Fylkismenn hafa hins vegar unnið einn leik og tapað tveimur af sínum fyrstu þrem leikjum.