Sport

Dagskráin í dag: Meistaradeildin, Subway-deildin, golf og rafíþróttir

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Liverpool heimsækir Rangers í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Liverpool heimsækir Rangers í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images

Það verður nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag, en alls verður boðið upp á tólf beinar útsendingar frá morgni og langt fram á nótt.

Stöð 2 Sport

Subway-deild kvenna í körfubolta á sviðið á Stöð 2 Sport í kvöld og við hefjum leik klukkan 18:05 þegar Breiðablik tekur á móti deildarmeisturum Fjölnis. Að þeim leik loknum færum við okkur svo yfir á Hlíðarenda þar sem Valskonur taka á móti toppliði Keflavíkur klukkan 20:05.

Stöð 2 Sport 2

Meistaradeildin og UEFA Youth League ráða ríkjum á Stöð 2 Sport 2 í dag, en klukkan 11:50 tekur Napoli á móti Ajax í UEFA Youth League áður en Rangers tekur á móti Liverpool í sömu keppni klukkan 13:55.

Klukkan 18:15 er svo komið að upphitun fyrir leiki kvöldsins í Meistaradeild Evrópu áður en skipt verður yfir til Glasgow í Skotlandi klukkan 18:50 þar sem Rangers tekur á móti Liverpool.

Meistaradeildarmörkin verða svo á sínum stað klukkan 21:00 þar sem farið verður yfir allt það helsta úr leikjum kvöldsins.

Stöð 2 Sport 3

Meistaradeildin er víða og á Stöð 2 Sport 3 verða tveir leikir í beinni útsendingu. Klukkan 16:35 sækir hollenska liðið Ajax Napoli heim áður en Bayer Leverkusen tekur á móti Porto klukkan 18:50.

Stöð 2 Sport 4

Eins og áður segir er Meistaradeildin víða og klukkan 16:35 tekur Atlético Madrid á móti taplausu liði Club Brugge á Stöð 2 Sport 4.

Stöð 2 Sport 5

Nátthrafnar ættu ekki að þurfa að láta sér leiðast því klukkan 03:00 eftir miðnætti hefst bein útsending frá ZOZO Championship á PGA-mótaröðinni í golfi.

Stöð 2 eSport

Stelpurnar í Babe Patrol verða að sjálfsögðu með sinn vikulega þátt klukkan 21:00 á Stöð 2 eSport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×