Sport

Dagskráin í dag: Subway-deildin, Olís-deildin, NBA, golf og rafíþróttir

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Tindastóll heimsækir Njarðvíkinga í Subway-deildinni í kvöld.
Tindastóll heimsækir Njarðvíkinga í Subway-deildinni í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag og langt fram á kvöld. Alls verða 13 beinar útsendingar í boði úr hinum ýmsu íþróttum og því ættu allir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi.

Stöð 2 Sport

Subway-deild karla á sviðið á Stöð 2 Sport í dag og við hefjum leik í Breiðholtinu klukkan 17:50 þar sem ÍR-ingar taka á móti Stjörnunni.

Klukkan 20:00 færum við okkur svo yfir til Njarðvíkur þar sem heimamenn taka á móti Tindastól áður en Subway Körfuboltakvöld mætir til leiks klukkan 22:00 þar sem farið verðu yfir allt það helsta úr 3. umferð deildarinnar.

Stöð 2 Sport 2

Juventus tekur á móti Empoli klukkan 18:35 í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Klukkan 20:35 er svo komið að NBA Action áður en NBA 360 - Opening Week lokar deginum á Stöð 2 Sport 2 klukkan 23:00.

Stöð 2 Sport 4

Einn leikur er á dagskrá í Olís-deild karla í handbolta þegar Fram tekur á móti Gróttu klukkan 19:50.

Stöð 2 Sport 5

Sýnt verður beint frá þremur golfmótum í dag og við hefjum leik klukkan 11:30 á Mallorca Golf Open á DP World Tour.

Klukkan 19:00 er svo komið að The CJ Cup á PGA-mótaröðinni áður en fyrstu kylfingar á BMW Ladies Championship á LPGA-mótaröðinn fara af stað klukkan 03:00 eftir miðnætti.

Stöð 2 eSport

BLAST Premier haustmótaröðin er í fullum gangi og upphitun fyrir daginn hefst á slaginu klukkan 14:00. Hálftíma síðar hefst svo fyrsta viðureign dagsins og verður spilað langt fram á kvöld.

https://stod2.is/framundan-i-beinni/




Fleiri fréttir

Sjá meira


×