Lífið

Arnar og Vítalía sögð flutt inn saman

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Það er óhætt að segja að árið hafi verið stormasamt hjá Arnari Grant og Vítalíu Lazarevu.
Það er óhætt að segja að árið hafi verið stormasamt hjá Arnari Grant og Vítalíu Lazarevu. samsett

Einkaþjálfarinn Arnar Grant og Vítalía Lazareva eru flutt inn saman að því er fram kemur í frétt Smartlands.

Smartland greinir frá því að parið búi nú saman í íbúð í Garðabæ og hafi reglulega sést saman í verslun Hagkaups í Garðabæ. Í dag birti Mannlíf mynd af parinu í Costco. 

Samband þeirra hefur þó ekki alltaf verið í slíkum blóma. Arnar hefur lýst því yfir að hann muni bera vitni í kynferðisbrotamáli sem komst í kastljósið í byrjun árs. 

Vítalía greindi frá meintum kynferðisbrotum í viðtali við Eddu Falak í Eigin konum, kvaðst hún hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu Þórði Má Jóhannessyni, Ara Edwald og Hreggviði Jónssyni. Kærði hún þá til lögreglu vegna þessa en meint brot áttu sér stað í bústaðarferð sem Vítalía mætti í á vegum Arnars.

Þremenningarnir Ari, Hreggviður og Þórður hafa þá sakað þau Vítal­íu og Arn­ar um til­raun til fjár­kúg­un­ar. Arnar hefur vísað þeim ásökunum á bug.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.