Tilþrifin: Dabbehhh tekur út þrjá fyrir toppliðið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. nóvember 2022 11:16 Dabbehhh var einn á móti öllum þegar Þór vann Breiðablik. Vísir/Stöð 2 eSport Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Dabbehhh í liði Þórs sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.
Þór mætti nýliðum Breiðabliks í fyrstu viðureign gærkvöldsins þegar áttundu umferð Ljósleiðaradeildarinnar lauk með þremur leikjum. Nýliðarnir höfðu unnið fjóra af sínum fyrstu sjö leikjum á tímabilinu, en Þórsarar gátu endurheimt toppsæti deildarinnar með sigri. Þórsarar höfðu að lokum betur, 16-8, og tylltu sér þar með á topp Ljósleiðaradeildarinnar á ný. Dabbehhh sýndi einnig frábær tilþrif um miðja viðureign, en þá var staðan 10-5, Þórsurum í vil. Vopnaður aðeins skammbyssu mætti hann öllum meðlimum Breiðabliks og tókst að taka þrjá með sér áður en hann féll sjálfur. Klippa: Elko tilþrifin: Dabbehhh takur út þrjá fyrir toppliðið Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem Dabbehhh á tilþrif kvöldsins í Ljósleiðaradeildinni, en hann átti einnig tilþrif kvöldsins í fyrstu umferð þegar Þór vann nauman sigur gegn SAGA.
Rafíþróttir Ljósleiðaradeildin Mest lesið Tekjur Wrexham í hæstu hæðum Fótbolti „Ég veit bara að þetta er mjög vont“ Fótbolti 570 milljóna uppsafnað tap hjá Everton Fótbolti „Ætluðum að gera þetta fyrir hana í kvöld“ Körfubolti Brast ítrekað í grát og neitar öllum ásökunum um ofbeldi Sport Haaland væntanlega úr leik í deildinni Fótbolti Reiknar ekki með öðru en Chris Paul taki annað tímabil Körfubolti „Gerðum ekki ráð fyrir einhverri rosalegri flugeldasýningu“ Körfubolti KA kaus að losa sig við þjálfarann Handbolti „Frábært að stela heimavellinum“ Körfubolti