Lífið

Gísli Örn og Steindi sem keppendur í Love Island – Akranes

Stefán Árni Pálsson skrifar
Love Island á Akranesi gæti virkað.
Love Island á Akranesi gæti virkað.

Þátturinn Stóra sviðið var á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldið en í þeim þáttum leggur Steinunn Ólína fyrir þá Auðunn Blöndal og Steinda Jr., fyndnar og fjölbreyttar áskoranir í hverjum þætti.

Í þættinum á föstudaginn mættu leikararnir Þorsteinn Bachmann sem var með Audda í liði og einnig Gísli Örn Garðarsson sem var með Steinda í liði.

Eitt af verkefnunum var að gera atriði úr raunveruleikaþætti og vakti Love Island - Akranes heldur betur athygli en þar fóru þeir Steindi og Gísli á kostum eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Gísli Örn og Steindi sem keppendur í Love Island Akranes





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.