Sport

Dagskráin í dag: Ítalski boltinn, golf, NBA og rafíþróttir

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Cremonese tók stig af ítölsku meisturunum í seinustu umferð og vilja fylgja því eftir er liðið heimsækir Empoli í kvöld.
Cremonese tók stig af ítölsku meisturunum í seinustu umferð og vilja fylgja því eftir er liðið heimsækir Empoli í kvöld. Alessandro Sabattini/Getty Images

Boðið verður upp á sjö beinar útsendingar úr hinum ýmsu íþróttum á sportrásum Stöðvar 2 í dag þar sem allir ættu að geta fundir eitthvað við sitt hæfi.

Golfið veðrur fyrirferðamikið í dag og við hefjum leik strax klukkan 08:30 á Nedbank Golf Challenge á DP  World Tour á Stöð 2 Sport 2.

Klukkan 11:00 er svo komið að Aramco Team Series - Jeddah á LET-mótaröðinni á Stöð 2 Sport 3 áður en Pelican Women's Championship á LPGA-mótaröðinni tekur við klukkan 15:00 á Stöð 2 Sport 4.

Það er svo Houston Open á PGA-mótaröðinni sem slær botninn í golfdaginn klukkan 18:00 á Stöð 2 Sport 3.

Þá verður einn leikur á dagskrá í ítalska boltanum þegar Empoli tekur á móti Cremonese klukkan 19:35 á Stöð 2 Sport 2.

Arena deildin er einnig á sínum stað á Stöð 2 eSport klukkan 19:30 og klukkan 22:45 er komið að NBA Action á Stöð 2 Sport 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×