Sport

Dagskráin í dag: Olís-deildin, Seinni bylgja karla og kvenna og rafíþróttir

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Íslandsmeistarar Vals heimsækja Hauka í Olís-deild karla í kvöld.
Íslandsmeistarar Vals heimsækja Hauka í Olís-deild karla í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Boðið verður upp á fjórar beinar útsendingar á sportrásum Stöðvar 2 þar sem umfjöllun um íslenska handboltann verður fyrirferðamikil.

Við hefjum leik klukkan 18:00 þegar Svava Kristín Grétarsdóttir og sérfræðingar Seinni bylgjunnar gera sjöttu umferð Olís-deild kvenna góð skil á Stöð 2 Sport.

Klukkan 19:15 skiptum við svo yfir á Ásvelli þar sem Haukar taka á móti Íslandsmeisturum Vals í Olís-deild karla á Stöð 2 Sport, áður en Seinni bylgjan fer yfir allt það helsta úr leikjum helgarinnar í karlaboltanum.

Þá er Gametíví á sínum stað með sinn vikulega þátt á Stöð 2 eSport klukkan 20:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×