Innlán lífeyrissjóða minnka ört eftir miklar fjárfestingar erlendis
![Yngvi Harðarson, framkvæmdastjóri Analytica, segir að hluti skýringarinnar á að lífeyrissjóðir eigi minna af innlánum sé sú að þeir hafi haldið áfram að fjárfesta erlendis, einkum í hlutabréfum.](https://www.visir.is/i/8710126E02430442B9B754FA1F64AD695FA3B0F86EB3D9F5A0A325FA5B40657E_713x0.jpg)
Innlán lífeyrissjóða hafa dregist hratt saman á einu ári eða um 26 prósent. Sérfræðingar segja að hluti skýringarinnar felist í að lífeyrissjóðir hafi fjárfest í erlendum hlutabréfum fyrir um 150 milljarða. Eðlilegt sé að innlán dragist saman í ljósi þess að vænt ávöxtun annarra eignaflokka sé hærri. Vísbendingar séu um að botninum sé náð og að kauptækifæri hafi skapast til dæmis á hlutabréfamarkaði.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/95A56A7CEA2C3E7A1CAB975982C4853B12F9453F5728B5A2630D5E6F76B6E065_308x200.jpg)
Innlán fyrirtækja tóku yfir 40 milljarða króna stökk í einum mánuði
Umfang innlána atvinnufyrirtækja í viðskiptabönkunum jókst um rúmlega 40 milljarða króna í september, eða um heil sex prósent á milli mánaða. Líklegt má telja að þar muni mikið um stóra greiðslu til Símans vegna sölunnar á Mílu á síðasta degi septembermánaðar en verulegur vöxtur hefur verið í innlánum fyrirtækja allt frá vormánuðum síðasta árs.