Lífið

Hera og Sam sæt saman í Eistlandi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Leikaraparið Sam Keeley og Hera Hilmarsdóttir. 
Leikaraparið Sam Keeley og Hera Hilmarsdóttir.  Aðsent

Hera Hilmarsdóttir leikkona mætti með kærastann sinn á frumsýningu Svar við bréfi Helgu á PÖFF kvikmyndahátíðinni sem fram fór í Tallin í Eistlandi.

Myndin var frumsýnd á laugardag á hátíðinni og eins og kom fram hér á Vísi var fullt út úr húsi á sýningunni. Myndin er einnig komin með einn fjögurra stjörnu dóm frá Tallin. 

Hera fer með aðalhlutverk í myndinni og hefur hlotið einróma lof fyrir leik sinn í myndinni. Hera er á fullu að leika og vinnur erlendis undir listamannsnafninu Hera Hilmar. Á dögunum var sýndur lokaþátturinn af þriðju þáttaraðar See, þar sem hún fer með aðahlutverk á móti Jason Mamoa.

Sam og Hera ljómuðu á svarta dreglinum á PÖFF.Aðsent

Hera og Sam búa erlendis og eru lítið fyrir að deila einkalífinu á samfélagsmiðlum og birta ekki oft myndir af hvort öðru á Instagram. Þau hafa þó verið par í mörg ár og hér fyrir neðan má sjá krúttlega mynd af þeim frá árinu 2018. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.