Sigrún Ósk Snorradóttir, eigandi Diegó, greinir frá þessu í færslu í Facebook hópnum Spottaði Diegó en fyrirtækin A4 og Dominos styrktu Diegó um hundrað þúsund krónur hver eftir að greint var frá slysinu. Hagkaup hefur nú lagt fram sömu upphæð.

„Þannig það eru komnir hans helstu staðir,“ segir Sigrún í samtali við fréttastofu en Diegó var fastagestur í verslunum fyrirtækjanna þriggja í Skeifunni og gladdi reglulega gesti og gangandi þar.
Þá náðu aðdáendur Diegó að safna 200 þúsund krónum fyrir höfðingjann og upphæðin því komin upp í hálfa milljón. Sú fjárhæð sem eftir stendur eftir að Diegó hefur lokið bataferli sínu mun renna til Villikatta.
Þakklát fyrir stuðninginn
Sigrún Ósk greindi frá því í Facebook hóp Diegó í gærkvöldi að hætt hafi verið við aðgerð á Diegó sem átti að vera í dag þar sem hann þurfti meiri tíma til að jafna sig.
Sigrún segir í samtali við fréttastofu í dag að Diegó sé enn slappur og að ekki liggi fyrir hvenær hann fari í seinni aðgerðina en að hann sé í góðum höndum undir eftirliti starfsmanna dýraspítalans, sem hún kann miklar þakkir. Þá sé fjölskyldan þakklát fyrir allan stuðning sem þau hafi fengið og söfnunin hjálpað þeim mikið.
Rúmlega tíu þúsund manns eru í Facebook hópnum Spottaði Diegó og hefur þeim fjölgað talsvert frá því að slysið varð. Þannig er ljóst að kötturinn frægi eigi fjölmarga aðdáendur og dælast batakveðjur þar inn daglega, aðallega fyrir hönd annarra ferfætlinga.