Lífið

Desemberspá Siggu Kling - Nautið

Sigga Kling skrifar

Elsku Nautið mitt, það er búið að vera bæði eldur og ís í kringum þig, en þú reddar þér alltaf með þínum einstaka húmor og léttleika, það gefur lífinu svo mikið gildi.

Í eðli þínu þráirðu öryggi, en gerir hlutina betur þegar þú þarft að vera á tánum og verður að hugsa hratt. Því að annars áttu það til að elska heimilið þitt svo mikið að þú sjáir ekki út fyrir veggina.

Þú getur verið fjandanum þrjóskari og það getur komið þér í vandræði í sambandi við líðan og líkamlega verki, því öll veikindi byrja í huganum fyrst. Og vegna þess að maður er fær um að gera sig veikan þá er maður líka fær um að lækna sig.

Ekki bíða fram á síðustu mínútu með það sem þú þarft að gera. Því þá eykst stressið og spennan og það á til að bitna á skapferli þínu.

Þú hefur svo sexý útgeislun þó að þú hafir ekki endilega hið staðlaða vaxtarlag eða útlit, þá er bara eitthvað við þig sem veldur því að þeir sem að þér finnst að þú hafir enga möguleika að ná í eru með þig á radarnum.

Þú ert fæddur til að þjónusta og þú ert bestur í þjónustuhlutverki. Þetta gefur þér miklu meiri möguleika og miklu fleiri færi á að öðlast þann frama sem hjarta þitt þráir.

Að þér dregst krefjandi fólk og þú reynir að hjálpa og vernda aðra um of. Þetta getur leitt til misskilnings en þér á bara að vera alveg sama um það.

Leyfðu ekki fólki að notfæra sér þína sérstöku góðvild, því að falslaust eðli þitt getur verið ávísun á það að fólk misnoti þig. En bestu fréttirnar eru að þú átt yndislega vini og trygglynda fjölskyldu og það er eina markmiðið sem gefur lífinu gildi.

Knús og kossar, Sigga Kling






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.