Lífið

Björk um ömmu­hlut­verkið: „Alveg jafn ó­trú­legt og að eignast sín eigin börn“

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Björk Guðmundsdóttir ætlar á tónleikaferðlag um Bretland í apríl á næsta ári.
Björk Guðmundsdóttir ætlar á tónleikaferðlag um Bretland í apríl á næsta ári. Getty

Söngkonan Björk Guðmundsdóttir var í viðtali hjá breska miðlinum The Times nú á dögunum og ræddi þar um tónlistarferilinn, móðurhlutverkið og ömmuhlutverkið.

„Ég hef alltaf verið umkringd börnum,“ segir Björk sem á sex yngri hálfsystkini. Hún á tvö börn, þau Sindra Eldon, 37 ára og Ísadóru Bjarkardóttur Barney sem er tvítug en í janúar 2019 eignaðist Sindri sitt fyrsta barn með eiginkonu sinni Morgan Johnson.

Í samtali við The Times  segir Björk segir ömmuhlutverkið hafa bætt miklu við líf sitt.

„Það sem kom mér mest á óvart var hversu stórkostlegt þetta er, bónuspartur við lífið sem fólk talar eiginlega ekki mikið um. Þetta er alveg jafn ótrúlegt og að eignast sín eigin börn.“

Börnin hennar tvö, Sindri og Ísadóra syngja bakraddir á nýjustu plötu Bjarkar, Fossora sem kom út fyrr á árinu. Aðdragandinn að því var sá að þau þrjú eyddu miklum tíma saman á meðan Covid-faraldurinn var í gangi.

„Ég varði miklu meiri tíma með krökkunum mínum heldur en venjulega. Þau voru hluti af þessu, þannig að það hefði verið skrítið að sleppa þeim.“ segir Björk.

Sótti meðferð hjá sálfræðingi

Þá ræðir hún einnig upplifun sína af því þegar börnin hennar uxu úr grasi og flugu úr hreiðrinu.

„Eina stundina þurfa þau ekkert á þér að halda og horfa á þig og ranghvolfa augunum og tveimur dögum seinna þurfa þau hjálp við að fylla út skattframtalið sitt.“

Björk kemur einnig inn á erfiða tíma í lífi sínu, þar á meðal skilnað sinn við listamanninn Matthew Barney. Björk segist hafa sótt meðferð hjá sálfræðingi til að takast á við álagið sem því fylgdi og reyndist það mikið gæfuspor.

„Þetta er frábært verkfæri til að grípa í og ég er mjög hrifin af því. Það hafa vissulega verið tímapunktar í mínu lífi þar sem ég hef þurft meira á því að halda en aðrir, til dæmis þegar foreldrar mínir skildu, og svo bara almennt út af hinu og þessu. Síðan varð þetta bara stöðugur, fastur hluti af tilverunni.“


Tengdar fréttir

Ný fatalína James Merry og 66°Norður frumsýnd

Samstarfslína útsaumslistamannsins James Merry og 66°Norður verður kynnt og sett á markað í dag. Myndir fyrir auglýsingaherferðina tók ljósmyndarinn og listakonan Saga Sig.

Beyoncé og Björk á lista Grammy verðlaunanna

Tilnefningar til Grammy verðlaunanna hafa verið tilkynntar. Beyoncé hlaut flestar tilnefningar fyrir plötuna sína Renaiss­ance, alls níu. Hin íslenska Björk Guðmundsdóttir hlaut einnig tilnefningu fyrir plötuna sína Fossora.

Skapar ævintýralega heima með Björk

Ljósmyndarinn Viðar Logi hefur verið að gera öfluga hluti í hinum skapandi heimi síðastliðin ár en að undanförnu hefur samstarfsverkefni hans og Bjarkar Guðmundsdóttir sérstaklega vakið athygli. Blaðamaður náði tali af Viðari Loga og fékk smá innsýn í hans skapandi og listræna hugarheim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.