Lífið

Frægir fundu ástina árið 2022

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ástin blómstraði hjá þessum pörum á árinu.
Ástin blómstraði hjá þessum pörum á árinu. Samsett

Á hverju ári greinir Vísir reglulega frá nýjum pörum og þá sérstaklega kemur að þekktum Íslendingum.

Fjölmargar fréttir birtast á ári hverju í tengslum við tilhugalíf þessara einstaklinga. Hér að neðan má sjá yfirferð Vísis um nokkur ástarsambönd sem blómstruðu á árinu 2022, í það minnsta um tíma.

Kristófer Acox, leikmaður Vals í Subway-deild karla í körfubolta, og Ólavía Grímsdóttir arkítektúrnemi opinberuðu samband sitt í byrjun árs.

Knattspyrnukonan og TikTok stjarnan Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir gekk út. Sá heppni er Dani Koljanin körfuboltamaður úr KR og sagði Brynhildur fyrst frá sambandinu í janúar.

Áhrifavaldarnir Nökkvi Fjalar og Embla Wigum urðu ástfangin. Þau eru nú flutt saman til London.

Leikararnir Aldís Amah og Kolbeinn Arnbjörnsson úr Svörtu söndum urðu heitasta stjörnupar landsins. Parið kynntist við tökur á þáttunum sem eru spennu- og dramaþættir í leikstjórn Baldvins Z. Líkt og fram hefur komið hér á Vísi er ný þáttaröð væntanleg. 

Athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir byrjaði með nýjum kærasta frá Essex. Hann heitir Ryan en við vitum lítið annað um hann.

Frá Instagram sögu Tönju fyrr á árinu.

Birgitta Líf Björnsdóttir eigandi Bankastræti club og markaðsstjóri World Class fann ástina á árinu. Sá heppni heitir Enok Jónsson.

Leikarinn og grínistinn Vilhelm Neto hefur fundið ástina í faðmi Tinnu Ýrar.

Förðunarfræðingurinn Salóme Ósk opinberaði samband sitt með Witcher leikaranum Laurence O'Fuarain.

Tónlistarkonan Elín Eyþórsdóttir og leikkonan Íris Tanja Flygenring byrjuðu saman í sumar. 

Þær trúlofuðu sig svo fyrir nokkrum vikum síðan.

Áhrifavaldurinn Camilla Rut Rúnarsdóttir og tónlistarmaðurinn Rafn Hlíðkvist Björg­vins­son skildu á árinu. Hún fann svo ástina á ný í faðmi Valla, eiganda Flatbökunnar. 

Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir sleit sambandi sínu við Kristján Einar Sigurbjörnsson og eignaðist nýjan kærasta, Alexander Egholm Alexandersson. 

Sálfræðineminn og fegurðardrottningin Anna Orlowska fann ástina á árinu og trúlofaðist Svavari Sigmundssyni. 

Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona á K100, og Stefán Jak­obs­son, söngv­ari í Dimmu, fundu ástina. Þau enduðu svo á að trúlofa sig í lok árs. 

Feg­urðardrottn­ing­in Hugrún Birta Egilsdóttir hefur fundið ástina með hinum enska Jack Hes­lewood. Þau kynntust í gegnum fegurðarsamkeppnina Miss world. Jack var kynnir á keppninni sem Hugrún keppti í fyrr á árinu og var sjálfur Herra heimur árið 2019.

Brynja Dan Gunnarsdóttir varaþingmaður Framsóknarflokksins og eigandi Extraloppunnar skildi og fann ástina á ný á árinu. Sá heppni heitir Jóhann Sveinbjörnsson. Samkvæmt heimildum Vísis kynntist parið í Helsinki þar sem þau voru stödd á Helsinki Cup en bæði eru þau búsett í Garðabæ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.