Klara er nýkomin heim frá Los Angeles þar sem hún var að taka upp nýja plötu. Lagið hennar Eyjanótt var eitt vinsælasta lag ársins og ætlar því að enda þetta ár stæl og vera fyrsti tónlistarkonan til að halda jólatónleika í næstum aldargömlu húsi Sundhallar Hafnarfjarðar.
Samveran mikilvægust
Tónleikarnir fara fram sunnudaginn 18. desember. Sundlaugin verður ekki opin fyrir gesti á meðan tónleikum stendur en setið verður í kring um sundlaugina. Uppselt er á báða tónleikana.
Klara gaf nýverið út jólalagið Desember sem að hefur fengið frábærar viðtökur.
„Lagið fjallar um það sem mér finnst skipta mestu máli yfir jólin. Það á til að gleymast í öllu stressinu. Þó að þessi mánuðir sé í rauninni frekar dimmur, grár og kaldur að þá er það umfram allt samvera með ástvinum sem birtir hann upp og er í raun það eina sem skiptir máli yfir jólin,“ segir Klara.
Raunverulegu stjörnurnar
Hugmyndin kemur frá Rósu bæjarstýru Hafnarfjarðar sem stakk upp á því fyrir síðustu jól að halda tónleika í þessu fallega húsi og Klara ákvað að láta verða af þessari hugmynd.
„Ég held þessa tónleika í samstarfi við Ferða- og Menningarmálanefnd Hafnarfjarðar sem er til fyrirmyndar í einu og öllu þegar kemur að því að hlúa að og standa við bakið á list, menningu og ungu og upprennandi listafólki í Hafnarfirði. Önnur bæjarfélög gætu tekið þau sér til fyrirmyndar. Ég er þeim afskaplega þakklát fyrir samstarfið.“
En tónleikarnir verða ekkert á pari við hefðbundna jólatónleika í þessu umhverfi.
„Ég ætla að flytja mín uppáhalds hátíðarlög. Þetta verða alls ekki bara jólalög ofan í hvort annað. Enda held ég að við séum öll búin að heyra þau nógu oft. Þetta verður samblanda af jólalögum og öðrum lögum sem eru hátíðleg á annan hátt.“
Klara ætlar svo að fá gott fólk með sér á þessari einstöku stund.
„Með mér verða þau Kjartan Baldursson á gítar og Helga Guðný Hallsdóttir á selló. Þau eru raunverulegu stjörnurnar á þessum tónleikum. Það er heiður að spila með svona hæfileikaríku fólki.“