Veður

Lægðar­drag velur tals­verðri slyddu eða rigningu

Atli Ísleifsson skrifar
Það hlýnar hjá okkur frá því sem verið hefur undanfarið og heilt yfir verður hiti nálægt frostmark á landinu í dag.
Það hlýnar hjá okkur frá því sem verið hefur undanfarið og heilt yfir verður hiti nálægt frostmark á landinu í dag. Vísir/Vilhelm

Útlit er fyrir sunnanátt í dag þar sem víða verður á vindur átta til fimmtán metrar á sekúndu og él. Þó má reikna með að það verði þurrt norðaustanlands.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að síðdegis komi lítið lægðardrag inn á land úr suðri sem mun valda talsverðri slyddu eða rigningu á láglendi á Suðausturlandi og einnig á Austfjörðum í kvöld.

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á Austfjörðum vegna allhvass vinds með snjókomu frá klukkan 20 í kvöld og til klukkan eitt í nótt. Má þar búast við vindhraða á bilinu þrettán til átján metrar á sekúndu með talsverðri snjókomu og skafrenningi til fjalla. Þá má reikna með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum.

„Það hlýnar hjá okkur frá því sem verið hefur undanfarið og heilt yfir verður hiti nálægt frostmark á landinu í dag.

Mun rólegri suðvestanátt á morgun víðast hvar, skýjað með köflum, stöku él og frystir aftur. Annað veður í vændum austanlands, þar hangir úrkomubakki yfir og úr honum ýmist rignir eða snjóar. Auk þess má búast við allhvassri suðaustanátt á því svæði framan af degi,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Suðvestan 3-10 m/s, skýjað með köflum og stöku él. Frost 2 til 7 stig. Rigning eða snjókoma austanlands og hiti um og yfir frostmarki, auk þess allhvöss suðaustanátt þar framan af degi.

Á miðvikudag: Norðlæg átt 3-10. Snjókoma á austurhelmingi landsins, en rigning með austurströndinni. Bjartviðri um landið vestanvert. Frost 2 til 10 stig, en frostlaust austast.

Á fimmtudag: Fremur hæg breytileg átt, þurrt að mestu á landinu og bjart á köflum. Frost 3 til 13 stig.

Á föstudag: Gengur í austan 10-15, en 15-20 með suðurströndinni. Dálítil él á austanverðu landinu, en þurrt vestantil. Dregur úr frosti.

Á laugardag og sunnudag: Norðaustanátt með éljum, en bjartviðri sunnan heiða. Frost 0 til 5 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×