Stöðutaka með krónunni minnkar um fjórðung á örfáum mánuðum
![Minni umsvif í framvirkum gjaldmiðlasamningum, þar sem fjárfestar höfðu meðal annars verið að veðja á að gengið myndi styrkjast, má einkum rekja til þess að spákaupmenn á markaði fóru að loka samningum sínum.](https://www.visir.is/i/2E8A274C7EBCA8631CBB70148889CE768603B670E029A69B5256110BC60E2601_713x0.jpg)
Talsvert hefur dregið úr væntingum útflutningsfyrirtækja og fjárfesta um að gengi krónunnar eigi eftir að styrkjast. Það má sjá þegar litið er til umfangs stöðutöku með krónunni, eða svonefnd gnóttstaða í gegnum framvirka samninga með gjaldeyri, en hún minnkaði um liðlega fjórðung á fáum mánuðum undir árslok 2022, eftir að hafa áður farið stöðugt vaxandi frá því í ársbyrjun 2021.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/D90F80053D68B3A44970C12A4D6095C190A1FA7A3A9EF121C9F05F35ADFDA677_308x200.jpg)
Ásgeir: Krónan töluð niður ef hún sveiflaðist jafnmikið og evran
Ef gengi íslensku krónunnar sveiflaðist jafn mikið og gengi evru gagnvart Bandaríkjadal hefur gert yrði eflaust skrifað um það í íslenskum fjölmiðlum og bent á hversu slæmur gjaldmiðill krónan væri. Þetta kom fram í máli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra á kynningarfundi peningastefnunefndar í morgun.