Krónan ekki veikari gegn evru í tvö ár þrátt fyrir inngrip Seðlabankans
![Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.](https://www.visir.is/i/6563444548E89510E7BA17D90030910786EE6504365801E1FFBED640A25AE4AF_713x0.jpg)
Seðlabankinn beitti ítrekuðum inngripum á gjaldeyrismarkaði í dag til að reyna stemma stigu við stöðugri gengisveikingu krónunnar. Þetta voru fyrstu inngrip bankans í tvo mánuði en þrátt fyrir að hafa selt talsvert magn af gjaldeyri þá lækkaði gengi krónunnar engu að síður um liðlega eitt prósent gagnvart evrunni.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/22D5E2704A674C059377DE5A3AC2F490DA0F5E75DFFA717557F3BF73AEC7C65B_308x200.jpg)
Styrking krónunnar gegn evru þurrkast út þrátt fyrir gjaldeyrissölu Seðlabankans
Gengi krónunnar hefur verið í stöðugum veikingarfasa á undanförnum vikum en mikil gengisstyrking framan af ári, einkum gagnvart evrunni, hefur núna gengið til baka og meira en það. Seðlabanki Íslands greip margsinnis inn í á markaði í dag með sölu á gjaldeyri úr forða sínum til að reyna að stemma stigu við of mikilli gengislækkun en samkvæmt nýrri hagspá Arion mun krónan halda áfram að gefa eftir fram á næsta ár.