Lífið

Biggi lögga og Sísí Ingólfs nýtt par

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Biggi lögga er kominn í samband með Sísi Ingólfs listakonu.
Biggi lögga er kominn í samband með Sísi Ingólfs listakonu. Skjáskot/Facebook

Birgir Örn Guðjónsson, eða Biggi lögga eins og hann gjarnan er kallaður, hefur fundið ástina. Sú heppna er Sísí Ingólfsdóttir sem hefur á síðustu árum skapað sér nafn sem listakona hér á landi.

Biggi er sennilega einn þekktasti lögregluþjónn landsins en hann hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum síðustu ár. Sísí er myndlistarkona og hefur með verkum sínum lagt mikla áherslu á kynjahlutverkin og birtingarmyndir þeirra, oftar en ekki á húmorískan hátt.

Útsaumsverk hennar hafa vakið mikla athygli en þar notast hún við frasa á borð við „afsakið þvottahrúguna í sófanum“, „fyrirgefið að ég sé ómáluð“ og „afsakið þetta smáræði“.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.