Stöð 2 Sport
Klukkan 18.05 hefst útsending úr Smáranum þar sem Breiðablik tekur á móti Fjölni í Subway deild kvenna í körfubolta. Að þeim leik loknum höldum við á Hlíðarenda þar sem Valur tekur á móti toppliði Keflavíkur.
Stöð 2 Sport 2
Klukkan 13.00 hefst upphitun fyrir leiki dagsins í ensku bikarkeppninni í fótbolta, þeirri elstu og virtustu. Leikur Brighton & Hove Albion og Liverpool hefst klukkan 13.30. Að leik loknum verður leikurinn gerður upp. Klukkan 16.30 er svo komið að leik Wrexham og Sheffield United í sömu keppni.
Klukkan 19.30 hefst upphitun fyrir leiki kvöldsins í NFL en eftir að þeim lýkur verður ljóst hvaða lið mætast í Ofurskálinni þann 12. febrúar. Fyrri leikur kvöldsins hefst klukkan 20.00 en þar mætast Philadelphia Eagles og San Francisco 49ers.
Klukkan 23.35 er leikur Kansas City Chiefs og Cincinnati Bengals svo á dagskrá.
Stöð 2 Sport 3
AC Milan tekur á móti hinu stórskemmtilega liði Sassuolo í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 11.30. Juventus tekur svo á móti Monza klukkan 14.00 í sömu deild. Klukkan 17.00 er komið að leik Lazio og Fiorentina. Topplið Napoli tekur á móti Rómverjum klukkan 19.35.
Stöð 2 Sport 4
Stórlið Real Madríd sækir BAXI Manresa heim í ACB deildinni í körfubolta á Spáni klukkan 11.30.
Klukkan 13.50 tekur Stoke City á móti Stevenage í ensku bikarkeppninni.
Klukkan 18.00 er leikur Charlotte Hornets og Miami Heat í NBA deildinni í körfubolta á dagskrá.
Stöð 2 Esport
Klukkan 13.30 hefst upphitun fyrir leiki dagsins í BLAST Premier. Klukkan 14.00 er fyrri leikur dagsins á dagskrá. Klukkan 17.30 er seinni leikur dagsins á dagskrá.
Sandkassinn er svo á dagskrá klukkan 20.00.