Lífið

Love Is­land barn komið í heiminn

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Tommy Fury og Molly-Mae Hague lentu í öðru sæti í Love Island.
Tommy Fury og Molly-Mae Hague lentu í öðru sæti í Love Island. Getty/David M. Benett

Breska Love Island parið Tommy Fury og Molly Mae Hague hafa eignast sitt fyrsta barn. 

Þessu greindi Hague frá á Instagram reikningi sínum. 

Með myndinni af litlu fjölskyldunni skrifar hún einungis fæðingardag barnsins, þann 23. janúar. 

Parið kynntist í fimmtu seríu vinsælu raunveruleikaþáttanna „Love Island“ árið 2019 og hefur verið saman allar götur síðan. 

Líkt og fæðing barnsins var ólétta Hague tilkynnt á samfélagsmiðlum með dramatísku myndbandi þar sem farið er yfir samband parsins alla leið frá Love Island að meðgöngu. 

Ástareyjan er þó ekki sú eina sem Hague hefur heimsótt en hún kom til Íslands  í ágúst síðastliðnum fyrir einhverskonar tískuverkefni. Á meðan veru hennar hérlendis stóð heimsótti hún Hamborgarabúllu Tómasar en hún sagðist hafa „þurft“ að fara þangað vegna nafns kærastans síns, hnefaleikakappans Tommy Fury. 


Tengdar fréttir

Love Island par fjölgar sér

Love Island parið Molly Mae Hague og Tommy Fury eiga von á barni saman. Þau tilkynntu komu barnsins í færslu á Instagram miðlum sínum í gær. Parið kynntist í fimmtu seríu af raunveruleikaþáttunum árið 2019. 

Um­deild Love Is­land stjarna komin til Ís­lands

Breska fyrirsætan og Love Island stjarnan Molly-Mae Hague er á Íslandi um þessar mundir. Af myndum Molly á Instagram story að dæma kom hún til landsins fyrr í dag og virðist vera stödd hér vegna myndatöku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.