Lífið

Rut Káradóttir selur hönnunarhöllina sína

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Rut Kára hefur sett heimili sitt í Breiðholti á sölu.
Rut Kára hefur sett heimili sitt í Breiðholti á sölu. Gunnar Sverrisson

Eitt glæsilegasta einbýlishús landsins er komið á sölu, heimili Rut Káradóttur innanhússarkitekts. Um er að ræða algjöra hönnunarperlu.

Húsið við Fremristekk 13 var byggt 1971 en hefur verið endurhannað og endurbætt frá A-Ö samkvæmt Fasteignavef Vísis. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og Rut sjálf hannaði allt innandyra. Logi Einarsson arkitekt teiknaði viðbygginguna og Þráinn Haukson landslagsarkitekt hannaði lóðina.

Útsýni er yfir Elliðaárdal, borgina, Esjuna og allt út á Snæfellsnes. Húsið er skráð 242 fermetrar og þar af er bílskúr 26,9 fermetrar. Í húsinu eru tveir arnar, annar í sérstöku spa rými en í húsinu er vatnsgufa og heitur pottur. Fasteignamatið á þessu sex herbergja einbýli er 98.650.000 milljónir og óskað er eftir tilboðum. 

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir af þessari einstöku eign.

Gunnar Sverrisson
Gunnar Sverrisson
Sérstakt vínherbergi er í kjallara.Gunnar Sverrisson
22 fermetra spa rými er í húsinu.Gunnar Sverrisson
Gunnar Sverrisson
Gunnar Sverrisson
Gunnar Sverrisson
Gunnar Sverrisson
Gunnar Sverrisson
Gunnar Sverrisson
Gunnar Sverrisson

Gunnar Sverrisson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.