Viðskipti erlent

Ástralar vilja ekki borga með Karli

Bjarki Sigurðsson skrifar
Karl III Bretlandskonungur hlaut ekki náð hjá ástralska seðlabankanum og laut í lægra haldi fyrir innfæddum.
Karl III Bretlandskonungur hlaut ekki náð hjá ástralska seðlabankanum og laut í lægra haldi fyrir innfæddum. Getty/Alastair Grant

Karl III konungur verður ekki á nýjum fimm dollara seðli Ástrala. Verið er að endurhanna seðilinn og verður móðir hans, Elísabet II, fjarlægð af seðlinum. Í staðinn verður seðillinn til heiðurs innfæddum Áströlum.

Seðlabanki Ástralíu greindi frá þessu í nótt en ákvörðunin var tekin í samráði við ríkisstjórn landsins. Rætt verður við innfædda í landinu og munu þeir aðstoða við að hanna nýja seðilinn, sem fer líklega ekki í umferð fyrr en eftir nokkur ár samkvæmt grein CNN. 

Elísabet II er framan á núverandi útgáfu fimm dollara seðilsins og töldu margir að sonur hennar, Karl III, yrði næstur enda hefð fyrir því að ríkjandi þjóðhöfðingi sé á einhverjum seðli ríkisins. Hann verður þó á peningamyntum landsins en þær munu koma í umferð seinni hluta þessa árs. Hönnun myntanna verður afhjúpuð á næstu vikum. 

Elísabet II fyrrverandi Bretadrottning verður ekki lengur framan á fimm dollara seðlum Ástrala.Seðlabanki Ástralíu





Fleiri fréttir

Sjá meira


×