Ósk um hlé á gjaldeyriskaupum lífeyrissjóða kom peningastefnunefnd á óvart
![Nefndarmenn peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands frá árinu 2020.](https://www.visir.is/i/795B9BC9D3580DF1FC9CC3A69EFDC37944556F72B5FB28835AB75E38E69BF380_713x0.jpg)
Sú ákvörðun Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra í upphafi faraldursins árið 2020 að beina því til íslensku lífeyrissjóðanna um að gera tímabundið hlé á gjaldeyriskaupum sínum kom öðrum nefndarmönnum peningastefnunefndar Seðlabankans „á óvart“ að sögn erlendra sérfræðinga sem hafa gert ítarlega úttekt á starfsemi bankans.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/48CE6BE599D38CFC499C55D4729503EF7DB24378272E561F94BDA01FB5CB3499_308x200.jpg)
Lífeyrissjóðirnir keyptu gjaldeyri fyrir meira en tólf milljarða í desember
Íslensku lífeyrissjóðirnir juku verulega við gjaldeyriskaup sín undir árslok 2022 og keyptu að jafnaði erlendan gjaldeyri fyrir um 11,4 milljarða í hverjum mánuði á síðustu fjórum mánuðum ársins. Niðurstaðan var að hrein gjaldeyriskaup sjóðanna jukust um tæplega 100 prósent frá fyrra ári en gengi krónunnar lækkað talsvert á síðari árshelmingi 2022. Útlit er fyrir enn meiri kaup lífeyrissjóðanna á gjaldeyri á þessu ári.