Stjórn Marel vill skerpa á langtímahvötum stjórnenda
![Áformað er að innleiða frammistöðutengd hlutabréf árið 2024.](https://www.visir.is/i/289E9D0D3B0AB8196C5E4F2BEAA89C6809F033FD01C2CC1A871647B2431F0A73_713x0.jpg)
Stjórn Marel mun leggja fram tillögu á aðalfundi félagsins sem miðar að því að breyta langtímahvatakerfi félagsins úr kaupréttum í svokölluð frammistöðutengd hlutabréf sem eru háð því að fyrir fram skilgreindum markmiðum sé náð. Með breytingunni vill stjórnin skapa betra jafnvægi milli skammtíma- og langtímahvata, auk þess að færast nær alþjóðlegum viðmum.