Erum á leið í „verstu sviðsmyndina“ með vextina hærri lengur en áður var talið
![Markaðsvextir á stuttum ríkisskuldabréfum eru að nálgast átta prósent og hafa ekki verið hærri í meira en áratug.](https://www.visir.is/i/AB2974A006EDDE7F0A17C4AC875E90BFD1A26016302B53FDCAFC954C37E507F2_713x0.jpg)
Þrátt fyrir vaxtahækkun og harðari tón peningastefnunefndar fyrr í þessum mánuði þá hafa verðbólguvæntingar fjárfesta á skuldabréfamarkaði haldið áfram að versna verulega í skugga harðra átaka á vinnumarkaði sem hafa valdið enn meiri óvissu um verðbólguþróunina, að sögn sjóðstjóra og sérfræðinga á fjármálamarkaði. Markaðsvextir á stuttum ríkisskuldabréfum eru að nálgast átta prósent og hafa ekki verið hærri í meira en áratug.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/19382719BCE3827F45EE4D1E3A595E986941B6C057693EBD0CFA5B8B4CEF49AC_308x200.jpg)
Harður tónn Seðlabankans hífir upp kröfu ríkisbréfa
Ávöxtunarkröfur á óverðtryggðum ríkisskuldabréfum á styttri endanum hækkuðu um allt að 30 punkta í morgun eftir að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að hækka vexti um 0,5 prósentustig.
![](https://www.visir.is/i/795D0CD26699088E3A4090EECA5E19876724FAB9BB3EF20872F6F18A26B55F8A_308x200.jpg)
Sér ekki leið út úr deilunni
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir kjaradeiluna sem samtökin standa nú í við Eflingu vera þá hörðustu sem hann hefur séð á sínum ferli. Hann segir deiluna sérstaklega snúna þar sem búið sé að semja við meginþorra verkalýðsfélaganna.