Lífið

Kristrún búin að eiga

Bjarki Sigurðsson skrifar
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar var nýliði við formannsborðið í Kryddsíld Stöðvar 2 á gamlársdag.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar var nýliði við formannsborðið í Kryddsíld Stöðvar 2 á gamlársdag. Vísir/Hulda Margrét

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, og eiginmaður hennar, Einar B. Ingvarsson, eignuðust dóttur í byrjun febrúar. Þetta er þeirra annað barn en fyrir eiga þau dóttur sem fæddist árið 2019. Dóttirin hefur fengið nafnið Ragnhildur Steinunn.

Kristrún greindi frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni þann 12. febrúar síðastliðinn. Þá sagðist hún ekki komast með í ferð um landið í kjördæmaviku þar sem hún væri með þriggja daga stúlku heima. 

Varaþingmaður sinnir störfum Kristrúnar á Alþingi um þessar mundir á meðan hún er í fæðingarorlofi en hún greindi frá því í janúar að hún stefni á að taka þátt í þingstörfum í maí eða júní. Þá myndi hún taka restina af orlofinu út sumarið. 

„Spilum þetta bara eftir eyranu hér á Háaleitisbrautinni, eins og svo margt annað, og eins og á svo mörgum heimilum,“ sagði Kristrún. 

Fréttablaðið greinir frá því að dóttirin hafi hlotið nafnið Ragnhildur Steinunn í höfuðið á ömmum sínum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.