Lífið

Harry og Meg­han beðin um að tæma Frog­mor­e-bústaðinn

Atli Ísleifsson skrifar
Harry og Meghan létu gera Frogmore bústaðinn, sem er í eigu konungsfjölskyldunnar, upp fyrir um 2,4 milljónir punda á árunum 2018 til 2019. Það samsvarar rúmlega 400 milljónum íslenskra króna á núvirði.
Harry og Meghan létu gera Frogmore bústaðinn, sem er í eigu konungsfjölskyldunnar, upp fyrir um 2,4 milljónir punda á árunum 2018 til 2019. Það samsvarar rúmlega 400 milljónum íslenskra króna á núvirði. EPA

Breska hirðin hefur hefur gert hertogahjónunum af Sussex, þeim Harry og Meghan, að tæma Frogmore-bústaðinn (e. Frogmore Cottage), híbýli þeirra á lóð Windsor-kastala, vestur af Lundúnum. Ætlunin er að Andrés prins, yngri bróðir Karls konungs, fái húsið til afnota.

Þetta staðfestir talsmaður þeirra Harry og Meghan að því er segir í frétt BBC. Talsmaður bresku konungshallarinnar hefur þó ekki viljað tjá sig um málið.

Harry og Meghan búa nú í Kaliforníu með tveimur börnum sínum, þeim Archie og Lilibet. Þau hættu að starfa sem fulltrúar konungsfjölskyldunnar árið 2020 og yfirgáfu Bretland skömmu síðar.

Frogmore-bústaðurinn er tíu herbergja eign á lóð Windsor-kastala, en það var Elísabet drottning, amma Harrys, sem bauð honum og Meghan húsið til afnota. Drottningin lést í september 2022 og varð Karl, faðir Harry, þá konungur.

Gerðu upp húsið fyrir hundruð milljóna

Harry og Meghan létu gera húsið upp, sem er í eigu konungsfjölskyldunnar, fyrir um 2,4 milljónir punda á árunum 2018 til 2019. Það samsvarar rúmlega 400 milljónum íslenskra króna á núvirði. Fram kom að breskir skattborgarar hafi upphaflega staðið straum af kostnaði við endurbæturnar en hertoginn hafi síðar endurgreitt kostnaðinn sjálfur.

BBC segir frá því að þau Harry og Meghan hafi fengið skilaboð um að tæma Frogmore í janúar síðast liðnum, fáeinum dögum eftir útgáfu bókar Harry, Spare. 

Bókin seldist í bílförmum en þar segir Harry meðal annars frá því að bróðir han, Vilhjálmur prins, hafi í eitt skipti ráðist á hann og að þeir bræður hafi biðlað til föður þeirra að giftast ekki Kamillu Parker-Bowles.

Andrés prins er yngri bróðir Karls konungs.EPA

Andrés flytur inn

Til stendur að veita Andrési prins fái Frogmore kotið til afnota en hann býr nú í rúmlega þrjátíu herbergja húsi á lóð Windsor. Móðir hans lét hann hætta störfum fyrir konungsfjölskylduna árið 2019 eftir sjónvarpsviðtal þar sem hann svaraði ásökunum um að hann hefði ráðist kynferðislega á Virginia Giuffre. Hann neitaði sök í málinu. 

Fyrir um ári náðist sátt í málinu þar sem Andrés greiddi Giuffre óþekkta upphæð gegn því að hún myndi falla frá stefnu sinni í málinu. Óstaðfestar fréttir hafa borist af því að til standi að stöðva árlegar greiðslur til Andrésar sem myndi gera honum erfitt fyrir að reka heimili. Hann hefur einnig verið sviftur öllum titlum sem hann bar í breska hernum.


Tengdar fréttir

Harry talar um bókina: Sam­hengis­leysi, ilm­vatn mömmu og kal í klofi

Harry Bretaprins mætti í sitt fyrsta viðtal eftir útgáfu ævisögunnar „Spare“ eða „Varaskeifan“ í nótt. Viðtalið fór fram í kvöldþætti Stephen Colbert og talaði Harry um dauða móður sinnar, framkomu bresku pressunar og fjölskyldunnar, geðheilsu og þegar hann fékk kal á typpið. 

Bóka­verslanir opnuðu á mið­nætti þegar Spare fór í sölu

Bókaverslanir í Lundúnum opnuðu á miðnætti í nótt, þegar æviminningar Harry Bretaprins fóru í sölu. Raðir mynduðust fyrir utan verslanirnar og talsmenn keðjunnar Waterstone sögðu um að ræða eina mestu forsölu bókar síðasta áratuginn.

Varaskeifan segir frá: Manndráp í Afganistan, kókaín og fjölskylduerjur

Eintök af nýrri sjálfsævisögu Harry Bretaprins sem nefnist „Spare“ eða „Varaskeifan“ hafa valdið miklum usla hjá þeim meðlimum bresku pressunnar sem hafa fengið að lesa bókina á undan almenningi. Í bókinni talar Harry um það þegar hann tapaði sveindómnum, notaði kókaín og drap 25 í Afganistan.

„Ég vildi fjölskylduna, ekki stofnunina“

„Ég vil fá föður minn aftur, ég vil fá bróður minn aftur,“ segir Harry Bretaprins í viðtali við ITV sem verður birt 8. janúar næstkomandi, tveimur dögum fyrir útgáfu bókarinnar Spare.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.