Lífið

Jóhanna og Sunn­eva sem leið­sögu­menn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhanna og Sunneva fundu sig vel á fjórhjólunum.
Jóhanna og Sunneva fundu sig vel á fjórhjólunum.

Samfélagsmiðlastjörnurnar Sunneva Einarsdóttir og Jóhanna Helga Jensdóttir fóru af stað með nýja þáttaröð af #Samstarfi á Stöð 2 á dögunum.

Í þáttunum fá áhorfendur að fylgjast með þeim vinkonum Sunnevu og Jóu tækla fjölbreytt verkefni á vinnumarkaði, eins og þeim einum er lagið.

Í þætti gærkvöldsins skelltu vinkonurnar sér á fjórhjól. Markmiðið var að læra að verða leiðsögumenn og tóku þær verkefninu alvarlega. Þær til að mynda fengu að taka hóp af ferðamönnum út í leiðsöguævintýri rétt við Grindavík og gekk það vonum framar eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Sunneva og Jóhanna sem leiðsögumenn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.