Sport

Dagskráin í dag - AC Milan má ekki við því að misstíga sig

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Zlatan gæti birst á skjánum í kvöld.
Zlatan gæti birst á skjánum í kvöld. vísir/getty

Ítalska úrvalsdeildin verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld.

Ríkjandi meistarar AC Milan taka á móti Salernitana og þurfa á sigri að halda í baráttunni um Meistaradeildarsæti en AC Milan er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar.

Í liðinni viku tryggði AC Milan sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar með því að slá út Tottenham og vonast til að fylgja því eftir með heimasigri á Salernitana í kvöld.

Að auki eru þrír vikulegir þættir á sínum stað; Gametíví, Seinni bylgjan og Lögmál leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×