Lífið

Enginn pilsner í pylsu­­soðinu hjá Bæjarins bestu

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Eigandi Bæjarins bestu Guðrún Kristmundsdóttir talaði um stóra Pilsner-málið síðasta laugardag í viðtali í Bakaríinu. 
Eigandi Bæjarins bestu Guðrún Kristmundsdóttir talaði um stóra Pilsner-málið síðasta laugardag í viðtali í Bakaríinu.  Vísir/Vilhelm

„Þetta með Pilsnerinn, ég er búin að heyra þetta í svona þrjátíu ár og ég veit ekki hvaðan þessi saga kemur en hún er mjög lífsseig,“ segir Guðrún Björk Kristmundsdóttir eigandi Bæjarins bestu í viðtali í Bakaríinu síðasta laugardag. 

Pylsa eða pulsa, bæði betra

„Ég veit ekki, ég hef aldrei prófað það einu sinni, það er ábyggilega bara mjög gott,“ segir Guðrun vísandi í Pilsnersöguna. Hún hlær og þvertekur fyrir það að þetta sé eitthvað leynitrix sem þau hafi notast við í gegnum árin. 

Í gegnum tíðina hafa skapast heitar umræður um það hvort segja eigi pylsa eða pulsa í töluðu máli en þó svo að orðið pylsa teljist líklega réttara og sé yfirleitt notað í rituðu máli er orðið pulsa einnig gott og gilt samkvæmt íslensku orðabókinni. 

Aðspurð hvort orðið hún kjósi sjálf að nota, pylsa eða pulsa, svarar Guðrún: 

Það er nú bara allavega, pylsa eða pulsa, það fer eftir því hvað ég er að segja hverju sinni. Ég held að það eigi nú við flesta.

Viðtalið við Guðrúnu í heild sinni má nálgast í spilaranum hér fyrir neðan.

Valstómatsósan best með pylsum

Á pylsuna fær Guðrún sér yfirleitt það sama, eina með öllu nema steiktum og mikið af sinnepi. 

En hvaða tómatsósa ætli sé notuð á Bæjarins bestu?

Það er auðvitað Valstómatsósan, sem er náttúrulega ekki tómatsósa heldur eplasósa. Hún passar bara svo ótrúlega vel við pylsur. 

Morgunþátturinn Bakaríið er á dagskrá alla laugardaga frá 9 - 12 á Bylgjunni. Hægt er að nálgast síðasta þátt í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.