Lífið

Stjörnu­lífið: Ástin, apríl­göbb og af­mæli aldarinnar

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta frá liðinni viku.
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta frá liðinni viku. Samsett

Viðburðarík vika er nú að baki og báru árshátíðir og afmæli þar hæst. Verðlaunavertíðin er ennþá í fullum gangi því Íslensku hljóðbókaverðlaunin voru veitt síðasta miðvikudag. 

Hinn stórskemmtilegi dagur 1. apríl var að venju haldinn hátíðlegur með hinum ýmsu aprílgöbbum. Vísir fór yfir þau helstu.

Þá fagnaði Vísir 25 ára afmæli á laugardaginn og var haldið upp á það með pompi og parkt í Gamla bíói. Þar kom saman fjölbreyttur hópur snillinga sem hefur á einhverjum tímapunkti starfað á miðlinum.

Fjölmennt var í 25 ára afmæli Vísis á laugardaginn. Myndasyrpa frá herlegheitunum birtist á Vísi síðar í dag.vísir/Daníel Þór
Stuð og stemmning í Gamla bíó.Vísir/Daníel Þór

Fjölmenni skellti sér á Jesus Christ Superstar í Hörpu á föstudagskvöldið. Meðal gesta voru hjónin Borghildur Erlingsdóttir forstjóri Hugverkastofunnar og Viðar Lúðvíksson lögmaður. Jóhanna Vigdís Arnardóttir leik- og söngkona og Guðrún Sóley Gestsdóttir sjónvarpskona virtust líka skemmta sér konunglega.

Berglind „Festival“ Pétursdóttir sjónvarpskona fagnaði 34 ára afmæli sínu á sunnudaginn. Hún skellti sér á Jómfrúna með kærasta sínum Þórði Gunnarssyni lögfræðingi í tilefni dagsins.

Þá héldu hjónin Margrét Skúladóttir Sigurz og Kristján Gunnar Ríkarðsson sameiginlegt fimmtugsafmæli í Smáranum á laugardaginn. Líkt og Vísir greindi frá var um að ræða afmæli aldarinnar og komu margir af vinsælustu skemmtikröftum landsins fram.

Páll Óskar, Sverrir Bergmann, Steindi, Magni, Auðunn Blöndal og Hreimur Örn voru á meðal þeirra sem stigu á stokk.

Sjá: Tryllt dag­­skrá í fimmtu­gs­af­­mæli aldarinnar í Smáranum

Dansarinn Ástrós Traustadóttir og athafnamaðurinn Adam Helgason skírðu dótturina. Sú litla fékk nafnið Nóra Náð.

Fjölmiðlakonurnar Þórhildur Þorkels og Kristjana Arnars fögnuðu 25 ára afmæli Vísis í Gamla bíói á laugardaginn.

Diljá Pétursdóttir er á fullu að undirbúa sig fyrir Eurovision.

Hún kom einnig fram í þættinum Kvöldstund með Eyþóri Inga á föstudaginn þar sem hún fór á kostum. 

Birgitta Líf og Enok fögnuðu eins árs sambandsafmæli skíðabrekkunni.

Vinkonurnar Salka Sól og Þuríður Blær skemmtu sér vel á Íslensku hljóðbókaverðlaununum.

Tónlistarfólkið Júlí Heiðar, Þórunn Erna Clausen og Saga Matthildur voru dómarar í Söngvakeppni framhaldsskólanna sem haldin var á laugardaginn.

Áslaug Arna skellti sér á fjárfestahátíð á Siglufirði.

Ofurparið Íris Tanja og Elín Ey nutu sín úti í náttúrunni. „Ást er ... ferskt loft, sól, kaffi á brúsa, nesti, ná andanum og muna hvað litlu hlutirnir skipta miklu máli,“ segja þær.

Listakonan Snæfríður Ingvarsdóttir hélt glæsilegt útgáfuteiti í síðustu viku á Hótel Holti.

Ljósmyndarinn Ína María nýtur lífsins á Grikklandi.

Tónlistarkonan Hildur er að fara af stað með nýjan útvarpsþátt á Rás 2.

Það er alltaf stutt í gleðina hjá sprelligosunum Evu Ruzu og Hjálmari Erni.

Tónlistarkonan Gugusar spilaði í Eldborg.

Bubbi Morthens tók sína vikulegu speglamynd.

Tónlistarkonan Bríet steig á svið í þessari stórkostlegu múnderingu.

„Aukaæfing hjá landsliðinu. Það eru víst þær sem telja,“ skrifar tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör.

Árstími leðurjakkanna er nú runninn upp. Þið heyrðuð það fyrst hjá Gumma Kíró.

Vinkonurnar Sunneva Einars og Jóhanna Helga skelltu sér út á föstudagskvöldið.

Katrín Edda og Markus skelltu sér á strangheiðarlegt sundlaugarstefnumót í Íslandsheimsókn sinni.

Aðdáendur bíða eftir nýrri tónlist frá djassdrottningunni Laufeyju.

Crossfit-stjarnan Tanja Davíðsdóttir fagnaði 26 ára afmæli sínu í Lúxemborg.

Förðunarfræðingurinn Kolbrún Anna Vignisdóttir er alltaf með puttann á púlsinum þegar kemur að tískunni.

Ljósmyndarinn Helgi Ómars og kærasti hans Pétur Sveinsson eru aldeilis að njóta lífsins í París.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.