Veður

Páskagular viðvaranir eftir hádegi

Árni Sæberg skrifar
Allhvasst og blautt verður á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Allhvasst og blautt verður á höfuðborgarsvæðinu í dag. Vísir/Vilhelm

Gular veðurviðvaranir verða í gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Faxaflóa í dag. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að alldjúp og hægfara lægð suðvestur af landinu muni stjórna veðrinu um páskana.

Í dag má búast við nokkuð hvassri suðaustanátt og að slái í storm suðvestanlands. Þess vegna hafa gular veðurviðvaranir verið gefnar út.

Á vef Veðurstofu Íslands segir að gul viðvörun taki gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan 15 og gildi til klukkan 19. Þar megi búast við suðaustan 18 til 23 metrum á sekúndu og fólk er hvatt til að tryggja lausamuni.

Á Suðurlandi megi gera ráð fyrir suðaustan stormi, 15 til 25 metrum á sekúndu og vindkviðum yfir þrjátíu metrum á sekúndu, hvassast við ströndina. Þar verður gul viðvörun í gildi á milli klukkan 14 og 18:30 og varasamt ferðaveður.

Á Faxaflóa verður gul viðvörun í gildi á milli klukkan 14 og 19. Þar verður suðaustan stormur, 18 til 25 metrar á sekúndu og vindhviður staðbundið yfir 35 metrum á sekúndu, til dæmis á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Varasamt ferðaveður.

Hvessir aftur á páskadag

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á morgun verði milt í veðri. Suðaustan kaldi eða stinningskaldi, þurrt norðanlands og bjart með köflum, annars skúrir en rigning suðaustantil.

Hins vegar sé áfram útlit fyrir lægð og suðaustanátt á páskasunnudag með rigningu syðra en lítilli sem engri úrkomu norðan heiða.

Veðurhorfur næstu daga:

Á laugardag:

Suðaustan 8-15 m/s. Þurrt að kalla norðanlands, annars skúrir en rigning suðaustantil. Hiti 3 til 10 stig.

Á sunnudag (páskadagur):

Gengur í allhvassa eða hvassa austan- og suðaustanátt. Rigning, einkum um landið suðaustanvert, en yfirleitt þurrt á Vestfjörðum og Norðurlandi. Hiti 4 til 12 stig. Dregur úr vindi um kvöldið.

Á mánudag (annar í páskum) og þriðjudag:

Austlæg átt og rigning með köflum eða skúrir, en slydda austantil á þriðjudag. Heldur kólnandi.

Á miðvikudag:

Breytileg átt og dálítil rigning eða slydda í flestum landshlutum. Hiti 1 til 6 stig yfir daginn.

Á fimmtudag:

Líklega norðlæg átt og úrkomulítið.


Tengdar fréttir

Ekki gott fyrir þá sem ætluðu á skíði um páskana

Búist er við nokkuð djúpri lægð á föstudaginn langa með tilheyrandi vindhraða og úrkomu. Veðurfræðingur mælir með því að fólk ferðist frekar á skírdag en á föstudaginn langa og segir veðurspána ekki hagstæða fyrir þá sem ætluðu að renna sér á skíðum um páskana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×