Lífið

Love Island-stjarna eignaðist dóttur

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Shaughna Phillips er hæstánægð með frumburð sinn.
Shaughna Phillips er hæstánægð með frumburð sinn. Getty/Dave J Hogan

Love Island-stjarnan Shaughna Phillips eignaðist dótturina Luciu á þriðjudaginn 4. apríl síðastliðinn. Þetta er frumburður raunveruleikastjörnunnar.

Phillips, sem tók þátt í sjöttu seríu Love Island árið 2020, greindi frá þessum gleðifregnum á Instagram þar sem hún birti mynd af sér og dótturinni Luciu í spítalarúminu á fæðingardeildinni.

Við myndina skrifaði hún „Elsku Lucia mín, ég vildi óska að ég hefði eignast þig fyrr svo ég gæti elskað þig lengur.“ Einnig stendur þar að stúlkan hafi mælst 8 pund og 8 únsur að þyngd sem gerir um 15 merkur. Hér fyrir neðan má sjá myndina af þeim mæðgum.

Mæðgurnar Shaughna og Lucia á fæðingardeildinni.Instagram

Áður en Phillips greindi frá fæðingu dótturinnar hafði hún skrifað pistil fyrir tímaritið OK! þar sem hún sagði að sér hefði verið flýtt á spítala af því hún fann ekki fyrir dótturinni hreyfast inni í sér. Fréttirnar eru því ekki síður ánægjulegar í ljósi þeirra flækja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.