Sport

Dag­skráin í dag: Stór­leikur í Meistara­deildinni, úr­slita­keppnin í körfunni og úr­slita­stund á FRÍS

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Tindastól lgetur tryggt sér sæti í undanúrslitum með sigri gegn Keflavík í kvöld.
Tindastól lgetur tryggt sér sæti í undanúrslitum með sigri gegn Keflavík í kvöld. Vísir/Bára

Sportrásir Stöðvar 2 eru stútfullar af beinum útsendingum frá morgni til kvölds á þessum fína miðvikudegi eftir páska. 

Stöð 2 Sport

Úrslitakeppi Subway-deildar karla heldur áfram og í kvöld eru tveir leikir á dagskrá í átta liða úrslitum. Keflvíkingar eru með bakið upp við vegg þegar liðið tekur á móti Tindastóli klukkan 18.05. Stólarnir hafa unnið báða leiki liðanna í átta liða úrslitum hingað til og Keflvíkingar þurfa því lífsnauðsynlega á sigri að halda til að halda sér á lífi.

Klukkan 19.55 færum við okkur yfir í Ólafssal þar sem Haukar taka á móti Þór frá Þorlákshöfn. Staðan í einvíginu er 1-1 og því allt í járnum, en liðin hafa unnið sinn heimaleikinn hvort.

Að þeim leik loknum tekur Subway Körfuboltakvöld við þar sem farið verður yfir allt það helsta úr leikjum kvöldsins.

Stöð 2 Sport 2

Meistaradeildin og NBA eiga sviðið á Stöð 2 sport 2 í kvöld. Við hefjum upphitun fyrir stórleik kvöldsins klukkan 18.35 áður en við skiptum yfir á Santiago Bernabeu klukkan 18.55 þar sem Real Madrid tekur á móti Chelsea í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Meistaradeildarmörkin verða svo á sínum stað að leik loknum þar sem sérfræðingar Stöðvar 2 Sports fara yfir leiki kvöldsins.

NBA-deildin í körfubolta fær einnig sitt pláss, en klukkan 23.00 mætast Toronto Raptors og Chicago Bulls áður en New Orleans Pelicans tekur á móti Oklahoma City Thunder klukkan 01.30 eftir miðnætti.

Stöð 2 Sport 4

Bein útsending frá Lotte Championship á LPGA-mótaröðinni í golfi hefst klukkan 23.00.

Stöð 2 eSport

BLAST Premier mótaröðin í CS:GO heldur áfram og upphitun fyrir sjötta dag hefst strax klukkan 07.30. Fyrstu leikir dagsins hefjast svo hálftíma síðar og verður leikið langt fram eftir degi.

Klukkan 19.30 er svo komið að úrslitastund á Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasamtaka Íslands, FRÍS, þar sem FVA og FSu eigast við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×